Bráðnauðsynlegt að vera í mömmuklúbbi

Ástríður Viðars­dótt­ir, fyrr­ver­andi blaðamaður og nemi við HR, á tvær ung­ar dæt­ur. Hún seg­ir að líf henn­ar hafi um­turn­ast við að verða móðir. 

Hvernig mamma vilt þú vera?

„Ég gef mér það að all­ar mömm­ur geri sitt besta, en stund­um er það bara ekki nóg og þá þarf að gera aðeins bet­ur. En burt­séð frá því þá lang­ar mig að vera skemmti­leg, sann­gjörn og vin­ur barna minna og vera þeim fyr­ir­mynd. Þetta er verk­efni sem má ekki klikka og þarf maður að leggja sig alla fram.“

Hvað legg­ur þú áherslu á í upp­eld­inu?

„Að bera virðingu fyr­ir börn­un­um mín­um og til­finn­ing­um þeirra. Það er margt í hug­mynda­fræði RIE sem ég tel að all­ir eigi að til­einka sér. Taka utan um börn­in, sýna þeim hlýju og láta þau finna að manni þykir raun­veru­lega vænt um þau, hvernig sem þau eru.“

Hvernig breytt­ist lífið eft­ir að þú varðst mamma?

„Það breyt­ist allt og við tek­ur stærsta áskor­un lífs­ins, að vera allt í einu með ómótaðan ein­stak­ling í hönd­un­um sem er al­gjör­lega upp á mann kom­inn. Því fylg­ir mik­il ábyrgð. Það að vera mamma er stærsta og erfiðasta en jafn­framt besta hlut­verk sem til er. Mót­un ein­stak­lings­ins er mikið í þínum hönd­um, þó að vissu­lega séu aðrir þætt­ir sem spili inn í.“

Hvað kom þér á óvart varðandi móður­hlut­verkið?

„Þær til­finn­ing­ar sem kviknuðu sem ég hafði ekki fundið fyr­ir áður. Þær til­finn­ing­ar eru þær dýpstu sem ég hef fundið.“

Ástríður Viðarsdóttir segir að lífið hafi umturnast við að eignast …
Ástríður Viðars­dótt­ir seg­ir að lífið hafi um­turn­ast við að eign­ast börn. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Finn­ur þú fyr­ir pressu frá sam­fé­lags­miðlum sem móðir?

„Ég gef skít í þann remb­ing sem ég hef heyrt og séð í kring­um mig. Mér finnst ég sjá á sam­fé­lags­miðlum af­mæli sem greini­lega krefjast gríðarlegs und­ir­bún­ings og kosta sitt. Ég vona að það sé und­an­tekn­ing að fólk haldi að svona þurfi af­mæli að vera til þess að þau séu ánægju­leg. Því ég held að þetta sé ekki gert fyr­ir börn­in, því börn gleðjast yfir litlu. Það er nóg að það sé gleði í kring­um af­mæli og aðrar hátíðar­stund­ir.“

Hvernig voru fyrstu mánuðirn­ir með ung­barn?

„Ég á tvær dæt­ur og upp­lif­an­irn­ar eru gjör­ólík­ar. Sú eldri var meðfæri­leg frá fyrsta degi. Maður vissi ekki af henni, hún bara drakk og svaf og byrjaði snemma að brosa. Því var ekki að heilsa með þá yngri. Sú var og er afar kröfu­hörð og tek­ur mikið pláss. Eft­ir ég átti hana skildi ég mæður sem töluðu um hversu krefj­andi það væri að eiga óvært barn.“

Varstu í mömm­u­klúbbi?

„Já, svo sann­ar­lega og mæli ég ein­dregið með því. Það er ómet­an­legt að geta borið sam­an bæk­ur sín­ar við aðrar ung­barna­mæður í sömu aðstöðu. Skemmti­leg og bráðnauðsyn­legt.“

Hvernig komstu þér í form eft­ir meðgöngu?

„Ég fór á mömm­u­nám­skeið með barnið með mér í Hreyf­ingu. Svo er ég með barn á hand­leggn­um all­an dag­inn og hlaup­andi á eft­ir ann­arri.“

Fannstu fyr­ir fæðing­arþung­lyndi? „Nei, ég var hepp­in þar.“

Hvernig er fæðinga­sag­an þín?

„Það er nú saga að segja frá því sem endaði með því að báðar voru tekn­ar með bráðakeis­ara eft­ir tæp­lega tveggja sóla­hringa átök. Þetta var lífs­reynsla út af fyr­ir sig en aldrei mun ég gleyma hversu vel og fag­lega var að öllu staðið á Land­spít­al­an­um. Maður get­ur oft þakkað fyr­ir að vera Íslend­ing­ur. Það er skömm að því hversu lág laun ljós­mæður hafa sem sinna þessu gríðarlega mik­il­væga og erfiða starfi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda