Það getur verið áskorun að eiga litla stúlku sem vill ekki leika sér við neitt annað en að dansa ballett. Í slíkum tilvikum getur verið góð hugmynd að búa til barnaherbergi sem er í anda leiksviðs, þar sem litla stúlkan getur hoppað og skoppað í sínu náttúrulega umhverfi allan daginn og jafnvel boðið öðrum í fjölskyldunni að vera með.
Eftirfarandi eru góðar hugmyndir frá ballerínunni Mary Helen Bowers sem þjálfaði meðal annars Natalie Portman fyrir hlutverk hennar í The Black Swan. Það þarf greinilega ekki að vera flókið að gera fallegt rými fyrir ballerínuna. Nóg pláss, einn fallegur spegill og slá er nóg. En að sjálfsögðu geta táskór og tjull-pils gert kraftaverk líka.