Auglýsingin sem þótti „of myndræn“ fyrir Óskarinn

Úr auglýsingu Frida Mom.
Úr auglýsingu Frida Mom. Skjáskot/Youtube

Auglýsing frá fyrirtæki sem sérhæfir sig í vörum fyrir nýbakaðar mæður hefur farið á flug á netinu eftir að sjónvarpsstöðin ABC neitaði að sýna hana á meðan Óskarsverðlaunin voru afhent á sunnudagskvöldið síðasta.

ABC taldi auglýsinguna frá Frida Mom vera of myndræna en í henni má sjá nýbakaða móður vakna um miðja nótt og með erfiðleikum fara á klósettið. Hin nýbakaða móðir notar alls konar vörur með misgóðum árangri. Í lok auglýsingarinnar segir „Tíminn eftir fæðingu þarf ekki að vera svona erfiður“ og á eftir koma vörur sem auðvelda konum þennan tíma. 

Frida Mom birti auglýsinguna á YouTube-rás sinni með þeim formerkjum að þessari auglýsingu hafi verið hafnað af ABC. „Hún er ekki ofbeldisfull, pólitísk eða kynferðisleg. Auglýsing okkar er ekki trúarleg né klúr og í henni sjást ekki byssur eða skotvopn,“ segir í myndbandi Frida Mom.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál