Græjaðu barnaafmælið á núll einni

Leikföng geta reynst hið besta borðskraut.
Leikföng geta reynst hið besta borðskraut. Unsplash.com

Það þarf ekki að vera flókið að halda upp á barna­af­mæli. Hér eru nokkr­ar ein­fald­ar hug­mynd­ir sem hægt er að nýta sér fyr­ir næsta af­mæli.

Veldu þema

Það er skemmti­legt að hafa ákveðið þema í barna­af­mæli. Hægt er að nota margt sem til er á heim­il­inu. Til dæm­is er hægt að hafa strand­arþema, hvetja krakk­ana til þess að mæta í stutt­bux­um og stutterma­bol og hafa með sér sólgler­augu. Þá er hægt að blása upp strand­bolta og raða strand­ar­hand­klæðum, skófl­um og föt­um inni í stofu. Á veislu­borðinu má skera niður an­an­as og mel­ón­ur í skemmti­leg form. Þá myndu íspinn­ar einnig passa vel í þetta þema.

View this post on In­sta­gram

Cómo prep­ar­ar una fiesta en la playa Fruta fresca. El verano es una época per­fecta para comer fruta fresca, y pu­edes incluir­la en tus fiestas como aper­iti­vo o comp­lemento para tus cócteles. Pu­edes además dar rienda su­elta a tu imag­inación con orig­ina­les diseños para hacer macedoni­as de lo más esti­los­as. Por falta de variedad de frutas, formas y col­or­es para combin­ar no será, des­de lu­ego. Y si no sa­bes por dónde comenz­ar, descu­bre cu­áles son las frutas de verano más idea­les. #fiesta­deplaya #fiestaplayera #fiestaplaya #fiestasplayeras #fiesta­en­la­playa #fiesta­sen­la­playa #beachparty #beachpartyideas #beachparties #tipsverano #tips­deverano

A post shared by fiesta­seventospty (@fiesta­seventospty) on Jan 15, 2020 at 5:49am PST

Ekki gleyma leikj­un­um

Leik­irn­ir skipta máli. Gott er að velja leiki sem eru viðeig­andi fyr­ir hvern ald­urs­hóp. Stopp­d­ans leik­ir og pakka­leik­ir slá í gegn fyr­ir yngstu gest­ina en svo er hægt að búa til rat­leiki og morðgátu­leiki fyr­ir eldri börn­in.

Kak­an skipt­ir máli

Barna­af­mæli eru ekk­ert án af­mæl­is­kök­unn­ar. Oft þarf ekki mikið til að skreyta köku á flott­an hátt. Það er sniðugt að nota leik­föng til þess að skreyta köku. Margt kem­ur til greina eins og til dæm­is Playmo karl­ar, dýr, trak­tor­ar og bíl­ar. Á sumr­in er hægt að fara út í garð og tína til nokk­ur vel val­in blóm til þess að skreyta kök­una. At­hugið samt að gera það rétt áður en að kak­an er bor­in fram til þess að blóm­in visni ekki í millitíðinni. Eins má raða lit­ríku nammi á skemmti­leg­an hátt og get­ur út­kom­an orðið æv­in­týra­leg. Þá má einnig nota kleinu­hringi til þess að skreyta köku. Allt eru þetta ein­fald­ar leiðir til þess að skapa eft­ir­minni­lega köku.

View this post on In­sta­gram

🦄 & 🧜🏼‍♀️ #birt­hdayca­ke #can­dyca­ke #unicornca­ke #mermaidca­ke #fun­fettiand­buttercream #homema­dewit­hlove

A post shared by Kelly War­dell (@quaintrell­e_kelly) on Jun 15, 2020 at 5:14am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda