Feðgin slá í gegn með sinn eigin fréttatíma

Sumarlestur barnanna Borgarbókasafnið efnir til sumarlesturs-átaks fyrir börn á öllum …
Sumarlestur barnanna Borgarbókasafnið efnir til sumarlesturs-átaks fyrir börn á öllum aldri í sumar. Ljósmynd/Catherine Hammond

Sumarlestur Borgarbókasafnsins er lestrarhvetjandi verkefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar sem markmiðið er að lesa sem flestar bækur í sumarfríinu. Eftir því sem krakkarnir koma oftar í heimsókn á Borgarbókasafnið eru meiri möguleikar á að hljóta vinning. Þegar þau næla sér í nýjar bækur skrifa börnin nafn og síma á veifu og setja í pottinn. Vikulega verður dregið út nafn eins lesanda, sem hlýtur vinning að launum. Að auki fær einn heppinn þátttakandi vegleg verðlaun í lok sumars. Öll grunnskólabörn geta tekið þátt í verkefninu.

Til að auglýsa verkefnið nánar greip Valgeir Gestsson deildarbókavörður á Borgarbókasafninu í Grófinni til þess ráðs að gera fréttainnslag og naut þar aðstoðar dóttur sinnar Bríetar til að leika fréttakonu. Bríet slær í gegn þar sem hún tekur viðtal við vinningshafa síðustu viku og þarna gæti verið framtíðarfréttakona að stíga sín fyrstu skref.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda