Ætlaði ekki að eignast börn

Amal og George Clooney.
Amal og George Clooney. AFP

Kvik­mynda­stjarn­an Geor­ge Cloo­ney á tví­bura með eig­in­konu sinni, mann­rétt­inda­lög­fræðingn­um Amal Cloo­ney. Þau voru búin að vera gift í eitt ár þegar þau ákváðu að reyna að eign­ast barn. Hollywood­stjarn­an, sem sá ekki fyr­ir sér að eign­ast eitt barn, sá alls ekki fyr­ir sér að verða faðir tveggja barna. 

„Sjáðu til, ég vildi ekki kvæn­ast. Ég vildi ekki eign­ast börn. Og síðan gekk þessi ótrú­lega mann­eskja inn í líf mitt og ég féll kylliflatur fyr­ir henni. Ég vissi um leið og ég hitti hana að allt yrði öðru­vísi,“ sagði Cloo­ney um líf sitt með eig­in­konu sinni í hlaðvarpsþætt­in­um WTF with Marc Mar­on að því fram kem­ur á vef People

Cloo­ney sagði einnig frá því hvenær hjón­in tóku ákvörðun um að verða for­eldr­ar. „Við vor­um búin að vera gift í um það bil ár og vor­um heima hjá vin­um okk­ar. Þau áttu barn sem var há­vært og dóna­legt og ég var bara guð minn góður. Við fór­um út í göngu­túr og hún hafði aldrei hugsað um það áður, í al­vöru,“ sagði kvik­mynda­stjarn­an um tím­ann rétt áður en þau ákváðu að eign­ast barn. 

„Við erum ótrú­lega hepp­in að hafa fundið hvort annað,“ sagði Cloo­ney eft­ir að eig­in­kona hans sagði að þau væru hepp­in. „Það er eins og við eig­um að deila þess­ari ham­ingju með öðru fólki,“ sagði hún þá. Þau hugsuðu um þetta í mín­útu og svo sagði Cloo­ney: „Ég meina ef þú ert til í þetta.“ Eig­in­kona hans svaraði: „Ég held að við ætt­um að reyna.“

George Clooney og Amal Clooney.
Geor­ge Cloo­ney og Amal Cloo­ney. AFP

Kvik­mynda­stjarn­an sagði að þessi stund hefði verið mjög til­finn­inga­rík enda sá hann ekki fyr­ir sér að verða faðir, hvað þá faðir tveggja barna. „Ég vissi ekki að ég myndi eign­ast tví­bura,“ sagði hann. Í fyrstu sagði lækn­ir­inn að þau ættu von á strák en benti þeim síðan á að þau ættu líka von á stelpu. 

Cloo­ney-hjón­in gengu í hjóna­band í sept­em­ber 2014 á Ítal­íu. Tví­bur­arn­ir Al­ex­and­er og Ella komu í heim­inn í júní 2017. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda