Rifjuðu upp gamla tíma

Beckham-hjónin með son sinn Brooklyn Beckham þegar hann var lítill …
Beckham-hjónin með son sinn Brooklyn Beckham þegar hann var lítill snáði. Samsett mynd

„Fyr­ir 23 árum breytt­ist líf mitt að ei­lífu. Ég upp­lifði í fyrsta sinn ást sem ómögu­legt er að út­skýra,“ skrifaði tískugoðið og fyrr­um kryddpí­an, Victoria Beckham, við gamla mynd sem hún deildi á In­sta­gram í til­efni af af­mæli frumb­urðar síns, Brook­lyns Beckhams. 

Á mynd­inni mátti sjá Victoriu halda á Brook­lyn á meðan hann borðaði ban­ana. Virðast mæðgin­in hafa verið í fjöl­skyldu­fríi þegar mynd­in var tek­in og notið þess að borða hollt og gott nesti við strönd. Fréttamiðill­inn Daily Mail greindi frá.

Stuttu eft­ir að Victoria minnt­ist ár­anna með Brook­lyn lít­inn deildi fjöl­skyldufaðir­inn og fyrr­um fót­bol­takapp­inn, Dav­id Beckham, einnig gam­alli mynd af sér og af­mæl­is­drengn­um og rifjaði upp gamla góða tíma.

Mynd­in af þeim fegðum er með því krútt­leg­asta sem hef­ur farið á ver­ald­ar­vef­inn en á henni held­ur Dav­id á Brook­lyn þegar hann er korna­barn. Miðað við holdafar Brook­lyns frá þess­um tíma hef­ur hann verið órag­ur við að drekka úr brjósti móður sinn­ar eða súpa af pela. Sæt­ar ung­barna­fell­ing­arn­ar og sólgler­aug­un­um gera hann ein­stak­lega krútt­leg­an. 

„Til ham­ingju með af­mælið frá­bæri dreng­ur­inn minn. Við elsk­um þig svo mikið,“ er meðal ann­ars sem Dav­id skrifaði við mynda­færsl­una. Ham­ingjuósk­um hef­ur rignt yfir Beckham-fjöl­skyld­una en þau hjón­in eru þekkt fyr­ir að vera sam­held­in og tek­ist vel til við að koma börn­um sín­um fjór­um á lagg­irn­ar.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Dav­id Beckham (@dav­idbeckham)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda