Prjóna fyrir úkraínsk börn á flótta

Starfsmenn Gallery Spuna hafa tekið við mikið af sokkum, húfum, …
Starfsmenn Gallery Spuna hafa tekið við mikið af sokkum, húfum, vettlingum og peysum handa flóttamönnum frá Úkraínu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vel hef­ur gengið að safna prjónuðum peys­um, húf­um, vett­ling­um og sokk­um fyr­ir börn á flótta frá Úkraínu að sögn Jó­hönnu S. Vil­hjálms­dótt­ur eig­anda Gallery Spuna. Versl­un­in tók að sér í síðustu viku að safna prjónuðum flík­um fyr­ir barna­fjöl­skyld­ur sem koma hingað til lands með lít­inn far­ang­ur og lítið á milli hand­anna. 

Gallery Spuni sendi út ákallið á fimmtu­dag­inn í síðustu viku og seg­ir Jó­hanna prjón­ara um allt land hafa haft sam­band við þær um að prjóna fyr­ir börn­in. 

„Það hef­ur verið stöðugur straum­ur. Við höf­um verið að taka enda­laust við. Það eru marg­ar sem eiga mikið til á lag­er og hafa eng­an ann­an til að gefa til. Ég tók á móti einni sem var að koma úr Hvera­gerði í gær. Það er bara frá­bært hvað þær eru vilj­ug­ar,“ seg­ir Jó­hanna. 

Gallery Spuni hefur lagt til garn til viljugra prjónara.
Gallery Spuni hef­ur lagt til garn til vilj­ugra prjón­ara. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Vant­ar peys­ur og bangsa

Það eiga marg­ar flík­ur eft­ir að skila sér í hús en Jó­hanna hef­ur skaffað garn til þeirra sem vilja leggja sitt af mörk­um en hafa ekki efni á því. Jó­hanna seg­ir að mikið sé um húf­ur, sokka og vett­linga en að helst vanti peys­ur, en það er auðvitað tíma­frek­ara að prjóna peys­ur. 

„Ég hef líka biðlað til þeirra að prjóna svona lít­il kúru­dýr og bangsa fyr­ir börn­in,“ seg­ir Jó­hanna.

Stefnt er að því að fara með afrakst­ur­inn til þeirra úkraínsku fjöl­skyldna sem koma hingað til lands. Í það minnsta 56 flótta­menn frá Úkraínu eru komn­ir til lands­ins en ekki er ljóst á þess­um tíma­punkti hversu mörg­um flótta­mönn­um Ísland get­ur tekið á móti.

Þau sem vilja leggja sitt af mörk­um geta farið með prjónaðar flík­ur í Gallery Spuna í Engi­hjalla. 

Konurnar prjóna líka fígúrur og bangsa handa börnunum.
Kon­urn­ar prjóna líka fíg­úr­ur og bangsa handa börn­un­um. Eggert Jó­hann­es­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda