Staðráðin í að eignast barn eftir fósturlátið

Jessie J þráir að verða móðir.
Jessie J þráir að verða móðir. AFP

Breska tón­list­ar­kon­an Jessie J seg­ist vera staðráðin í því að eign­ast barn á næstu tveim­ur árum. Stjarn­an greindi frá því í nóv­em­ber að hún hefði misst fóst­ur en læt­ur það ekki draga úr sér. 

Hinn 33 ára gamla Íslans­vin­kona hef­ur talað op­in­skátt um ófrjó­sem­is­vanda sinn. Hún var greind með en­dómetríósu árið 2014 og sögðu lækn­ar henni að hún gæti þurft að fara í legnám. Í fyrra varð hún ólétt ein en meðgang­an gekk illa. Þrátt fyr­ir það sagði Jessie J í hlaðvarpsþætt­in­um Rule Brea­kers á dög­un­um að mik­il gleði hefði fylgt ólétt­unni. 

„Ég er þakk­lát fyr­ir að hafa fundið fyr­ir gleði og er þakk­lát fyr­ir að hafa orðið ólétt,“ sagði stjarn­an að því fram kem­ur á Ya­hoo! News. „Ég varð ólétt og það var ótrú­lega lífs­reynsla.“ Henni hefði verið sagt að hún ætti aldrei eft­ir að getað eign­ast barn sjálf. Hún grét því af gleði þegar hún fann fyr­ir mórgunógleði. 

Jessie J var spurð í hlaðvarpsþætt­in­um hvort hún vildi eign­ast barn fljót­lega. „Já, 100 pró­sent. Mig lang­ar al­gjör­lega í barn á næstu tveim­ur árum. Ef ég get. Hvernig sem það ger­ist, nátt­úru­lega, með staðgöngumóður, tækni­frjóvg­un, ætt­leiðingu, hvernig sem er,“ sagði Jessie J og sagðist vera opin yfir öll­um leiðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda