Eltihrellir telur sig vera móður Harper

Feðginin Harper og David Beckham.
Feðginin Harper og David Beckham. Skjáskot/instagram

Beckham-fjöl­skyld­an hef­ur verið hundelt um nokk­urt skeið af konu sem tel­ur sig hafa átt í ástar­sam­bandi við fjöl­skyldu­föður­inn, fyrr­um fót­bolta­mann­inn Dav­id Beckham.

Sam­kvæmt gögn­um sem fréttamiðill­inn Daily Mail hef­ur und­ir hönd­um var Sharon Bell, elti­hrell­ir Beckham-fjöl­skyld­unn­ar, hand­tek­in fyr­ir utan grunn­skól­ann sem Harper, yngsta barn Beckham-hjón­anna, geng­ur í.

Bell stend­ur í þeirri trú að hún sé blóðmóðir Har­pers og gerði sér ferð í skól­ann til að ná tali af Harper hinn 18. nóv­em­ber á síðasta ári. Yf­ir­völd í West­mini­ster í Lund­ún­um vilja meina að Bell þjá­ist af rang­hug­mynd­um og þurfi að gang­ast und­ir mat hjá geðlæknateymi. 

„Frök­en Bell hef­ur í raun rang­hug­mynd­ir um að hún hafi verið í sam­bandi við Dav­id Beckham og að hann og Victoria hafi stolið eggj­um henn­ar. Því vill hún meina að hún sé líf­fræðileg móðir Har­pers og seg­ir hún það hafa verið ástæðuna fyr­ir heim­sókn­inni í skól­ann,“ er haft eft­ir Arizuna As­an­te, sak­sókn­ara, sem fer með málið.

Hef­ur haft áhrif á and­lega heilsu

Fjöl­marg­ar bréfa­send­ing­ar frá Bell hafa verið að ber­ast inn á heim­ili Beckham-fjöl­skyld­unn­ar upp á síðkastið en hún hafði oft hótað því að mæta á heim­ili þeirra við Oxfords­hire í Lund­ún­um. 

Mál þetta hef­ur haft slæm áhrif á líðan Dav­ids Beckhams ef marka má það sem fram kem­ur í gögn­un­um. Sak­sókn­ari lýsti því yfir að fjöl­skyldufaðir­inn hafi upp­lifað mikla ógn í sinn og fjöl­skyldu sinn­ar garð.

„Hon­um fannst sér og fjöl­skyldu sinni ógnað. Hann fann til mik­ill­ar hræðslu og óör­ygg­is, þá sér­stak­lega gagn­vart fjöl­skyld­unni. Hann gerði sér einnig grein fyr­ir að þessi hegðun væri ískyggi­leg og ein­beitt,“ er haft eft­ir As­an­te. 

Beckham-fjöl­skyld­an hef­ur fengið nálg­un­ar­bann Bell þar sem henni er óheim­ilt með öllu að nálg­ast fjöl­skyldumeðlimi og heim­ili þeirra eða senda þeim bréf þar til málsmeðferð lýk­ur. Þá eru all­ar lík­ur á að Bell verði lögð inn á viðeig­andi stofn­un sem kem­ur til með að aðstoða hana með þann geðræna vanda sem hún á við að etja.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda