Gerði gys að danstöktum pabba síns

Feðginin Harper og David Beckham.
Feðginin Harper og David Beckham. Skjáskot/instagram

Örverpi Beckham-hjón­anna, Harper, virt­ist skemmta sér vel á tón­leik­um með tón­list­ar­mann­in­um The Weeknd um liðna helgi. Miðað við mynd­skeið sem pabbi henn­ar, fyrr­ver­andi fót­boltamaður­inn Dav­id Beckham, deildi á In­sta­gram söng hún með hverju ein­asta lagi sem The Weeknd tók á tón­leik­un­um og kunni hvert ein­asta orð í textun­um.

Harper er sögð mik­il pabba­stelpa og verja þau feðgin­in mikl­um tíma sam­an. Þar sem þau eru sam­an­kom­in virðist aldrei vera leiðin­legt en á mynd­skeiðunum má heyra hlát­ur þeirra beggja þegar Dav­id tók upp á því að dansa og Harper gerði óspart grín að „pabba­dans­in­um“.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Dav­id Beckham (@dav­idbeckham)

„Ég veit að ég er bú­inn að setja inn eitt mynd­band af litlu stelp­unni okk­ar en hún er bara svo sæt þannig að ég varð að birta annað af henni hæðast að pabba­dans­in­um. Hún er svo sæt,“ skrifaði stolt­ur fjöl­skyldufaðir­inn við mynd­skeið sem sýn­ir Harper syngja há­stöf­um og herma eft­ir dan­stökt­um föður síns. Fréttamiðill­inn Daily Mail greindi frá.

Beckham-fjöl­skyld­an hef­ur eytt síðustu vik­um í Miami í Banda­ríkj­un­um en tón­leik­ar The Weeknd fóru fram í Hard Rock-höll­inni þar í borg um helg­ina. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Dav­id Beckham (@dav­idbeckham)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda