Fimm ráð til að auka frjósemi

Aðeins eitt prósent af sáðfrumum komast að egginu
Aðeins eitt prósent af sáðfrumum komast að egginu Unsplash/DainisGraceris

Það verða þungaður get­ur verið erfiðara en sum­ir áætla í byrj­un. Pör gætu þurft aðstoð tæknin­ar. Frjó­sem­is­lækn­ir­inn Dr. Micheal Eisen­berg seg­ir í viðtali við Mirr­or að það séu nokk­ur atriði tengd lífstíl verðandi for­eldra sem get­ur hef­ur áhrif á frjó­semi þeirra. Frjó­sem­is­vanda­mál vekja oft upp pirr­ing, sorg og kvíða en það er al­gengt að það taki tíma að búa til barn.

Ald­ur hef­ur mikið að segja með frjó­semi en kon­ur eru farn­ar að eign­ast börn seinna á lífs­leiðinni en þær gerðu áður. Þegar fólk hef­ur náð 30 ára aldri fara gæði sæðis og eggja að minnka. Þú get­ur breytt lífstíln­um þínum til að auka lík­ur á því að verða ólétt.

Stundið kyn­líf ann­an hvorn dag 

Það að reyna að búa til barn get­ur dregið úr þeirri gleði og skemmt­un sem kyn­líf get­ur veitt. Reynið af bestu getu að gera kyn­líf ekki að skyldu­verk­efni. Því oft­ar sem þið stundið kyn­líf því lík­legra er að verða þunguð. 

Passið hvað þið borðið 

Forðist skyndi­bita­mat. Slæm­ar trans­fit­ur geta dregið úr fjölda sæðis­frumna og geta valdið því að kon­ur skorti nær­ing­ar­efni sem ýta und­ir frjó­semi. Borðið mat sem er rík­ur af ómega-3, græn­meti, heil­hveiti, járn og mjólk­ur­vör­ur. Þessi fæða hef­ur verið tengd við hærri lík­ur á þung­un. 

Hjálpið fleiri sæðis­frum­um að ná til eggs­ins

Það eru ýms­ar leiðir til að koma sem flest­um sæðis­frum­um upp leggöng­in og mögu­legt er. Það eru ýms­ar stell­ing­ar og aðferðir sem hægt er að nota. Staðreynd­in er þó sú að eins eitt pró­sent af öll­um sáðfrum­um ná að egg­inu en það þarf aðeins eina frumu til að frjóvga það. 

Passið sleipi­efnið

Þegar fólk er að reyna að eign­ast barn stund­ar það oft kyn­líf og þá gæti verið þægi­legt að nota sleipi­efni. Sleipi­efni hæg­ir á sáðfrum­um. Notið frek­ar nátt­úru­lega sleipigjafa.

Minnkið streitu 

Stress hef­ur áhrif á svæði í heil­an­um sem stjórn­ar horm­ón­um og tíðahring. Ef streit­an er mik­il get­ur það haft þær af­leiðing­ar að kon­an fái egg­los sjaldn­ar eða jafn­vel hindrað það.

Það er talað um að ef fólk sé búið að reyna að eign­ast barn í meira en eitt ár, að það gæti glímt við frjó­sem­is­vanda. Hafið sam­band við ykk­ar lækni um hvað sé best að gera næst ef þið eruð í þeirri stöðu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda