Hvar er best að ala upp börn?

Japan, Eistland og Finnland eru meðal þeirra landa þar sem …
Japan, Eistland og Finnland eru meðal þeirra landa þar sem best er að ala upp börn samkvæmt nýlegri úttekt UNICEF. mbl.is/Colourbox

Ný­leg rann­sókn á veg­um UNICEF leiddi í ljós þau fimm lönd er skara fram úr þegar kem­ur að því að ala upp börn. Í rann­sókn­inni var not­ast við sér­stök ein­kunna­spjöld og gef­in stig fyr­ir ákveðna þætti eins og gæði mennt­un­ar, ör­yggi, stefnu varðandi fæðing­ar­or­lof, heilsu og ham­ingju barna á svæðinu og efna­hags­leg­an stöðug­leika. 

Eft­ir­far­andi þætti hef­ur UNICEF ein­beitt sér að því að skoða. Eiður­stöðurn­ar horfa ein­göngu á rík­ustu lönd í heimi en talið er að þær geti þó hjálpað til við að draga upp inn­sýn af því hvernig það er í raun að ala upp börn í lönd­um um all­an heim. 

Jap­an

Jap­an hef­ur lægsta hlut­fall offitu barna, lágt hlut­fall barnadauða og börn verða fyr­ir afar litl­um áhrif­um loft- og vatns­meng­un­ar. Landið er einnig eitt það ör­ugg­asta fyr­ir fjöl­skyld­ur en þar eru bíl­slys fátíð og heild­artíðni morða í Jap­an sú lægsta af þeim lönd­um sem UNICEF skoðaði. Örygg­isþátt­ur­inn þýðir ekki aðeins að fjöl­skyld­ur geti slakað aðeins á held­ur hef­ur það mik­il áhrif hvað viðkem­ur frelsi barn­anna. 

„Krakk­arn­ir fara sjálf­ir í skól­ann frá sex ára aldri eða svo. Þau taka strætó eða lest ef skól­inn er ekki bara í göngu­færi,“ sagði Mami McCagg, kona fædd og upp­al­in í Tókýó. „Jafn­vel í miðborg Tókýó ganga krakk­ar bara um og fara í skól­ann á eig­in spýt­ur. Það er al­veg eðli­legt af því að það er mjög ör­uggt. Eng­inn hef­ur raun­veru­leg­ar áhyggj­ur af krökk­un­um sín­um hér því við þurf­um ekki að hafa þær.“

Eist­land

Þó svo að Eist­land sé ekki efst á lista UNICEF þegar á heild­ina er litið stend­ur það mjög of­ar­lega í nokkr­um mik­il­væg­um þátt­um. Landið er til að mynda með næst­lægsta hlut­fall ung­barna sem fæðast und­ir meðalþyngd og er það al­mennt talið góð vís­bend­ing um gæði meðgöngu- og fæðing­arþjón­ustu. 

Mennta­kerfi lands­ins er sömu­leiðis eitt það besta í heimi. Börn í Eistlandi hafa betri stærðfræði-, nátt­úru­fræði- og lestr­arkunn­áttu en í nokkru öðru landi utan Asíu. 

Spánn

Spánn hlaut hæstu ein­kunn UNICEF varðandi um­hverf­is­skil­yrði. Þar er ein­stak­lega lág tíðni barna­sjúk­dóma af völd­um loft- eða vatns­meng­un­ar. Þrátt fyr­ir að sýna fram á ör­lítið lak­ara fram­boð af fé­lags-, mennt­un­ar- og heil­brigðisþjón­ustu búa börn á Spáni við ein­stak­lega mikla vellíðan. 

Landíð er í þriðja sæti hvað viðkem­ur and­legri vellíðan barna. 

Finn­land

Finn­land er víða þekkt fyr­ir að vera ham­ingju­rík­asti staður í heimi til þess að búa á. Landið sit­ur í fimmta sæti á lista UNICEF yfir bestu staðina til að ala upp börn. Bæði heil­brigðis- og mennta­kerfið er til fyr­ir­mynd­ar og legg­ur finnska mennta­kerfið áherslu á að gera náms­fer­il barna ánægju­leg­an og hvetja til þau til sjálf­stæðrar hugs­un­ar.  

Hol­land

Í efsta sæti heild­arlista UNICEF yfir vel­ferð barna er Hol­land og stend­ur landið sig ein­stak­lega vel hvað varðar geðheilsu barna. 

Í Hollandi er passað að skóla­ganga barna sé sniðin að þörf­um og bak­grunni hvers og eins nem­anda og hef­ur land­inu verið hrósað fyr­ir al­menna ham­ingju barna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda