„Vorum búin að búa okkur andlega undir tæknifrjóvgun“

Þórunn Helga Jóhannesdóttir og Jökull Jónasson ásamt syni þeirra, Matthíasi …
Þórunn Helga Jóhannesdóttir og Jökull Jónasson ásamt syni þeirra, Matthíasi Þór Jökulssyni. Ljósmynd/Ína María Einarsdóttir

Flug­freyj­an Þór­unn Helga Jó­hann­es­dótt­ir og unnusti henn­ar, Jök­ull Jónas­son, höfðu reynt að eign­ast barn í eitt og hálft ár og voru byrjuð að búa sig und­ir tækni­frjóvg­un­ar­ferli þegar þau fengu loks­ins já­kvætt þung­un­ar­próf í apríl 2020.

Það kom þeim svo veru­lega á óvart þegar Þór­unn varð óvænt ófrísk aft­ur í nóv­em­ber síðastliðnum, tæp­lega tveim­ur árum eft­ir að son­ur þeirra, Matth­ías Þór Jök­uls­son, kom í heim­inn. Þór­unn og Jök­ull eiga von á sínu öðru barni í júlí. Hún seg­ir að aðdrag­andi fyrstu þung­un­ar­inn­ar hafi verið til­finn­inga­rúss­íbani og að það hafi verið mik­il upp­lif­un að upp­lifa heima­fæðingu. 

Fjölskyldan í góðum gír í sólinni, en þau vita fátt …
Fjöl­skyld­an í góðum gír í sól­inni, en þau vita fátt betra en að ferðast og skapa minn­ing­ar sam­an.

Þór­unn er 28 ára göm­ul og starfar hjá Icelanda­ir sem flug­freyja og kenn­ari fyr­ir flug­freyj­ur og flugþjóna. Sam­hliða því stund­ar hún nám í mann­fræði við Há­skóla Íslands og mun út­skrif­ast með BA-gráðu þaðan í júní.

Í frí­tíma sín­um nýt­ur Þór­unn þess að hreyfa sig, slaka á og eyða tíma með fjöl­skyld­unni sinni. Hún veit fátt betra en að ferðast með fjöl­skyld­unni og skapa dýr­mæt­ar minn­ing­ar með þeim, en fjöl­skyld­an er ein­mitt stödd í Flórída í Banda­ríkj­un­um um þess­ar mund­ir. 

Mæðginin Matthías og Þórunn.
Mæðgin­in Matth­ías og Þór­unn.

Róm­an­tískt bón­orð í Central Park

Leiðir Þór­unn­ar og Jök­uls lágu sam­an sum­arið 2014, en þá hitt­ust þau reglu­lega á flug­vell­in­um í Kefla­vík þar sem Þór­unn starfaði í farþega­af­greiðslunni hjá Icelanda­ir og Jök­ull sem flugþjónn. Það var þó ekki fyrr en þau hitt­ust í brekk­unni á Þjóðhátíð sama sum­ar sem al­vara færðist í leik­inn. 

„Við byrjuðum að SMS-ast aðeins eft­ir Þjóðhátíð og tók­um svo rúnt sem var eig­in­lega fyrsta stefnu­mótið. Síðan þá höf­um við nán­ast verið sam­an upp á dag, en við urðum mjög fljótt hrif­in hvort af öðru og ég var nán­ast flutt inn til hans eft­ir að við höfðum verið að hitt­ast í mánuð,“ rifjar Þór­unn upp.

„Við trú­lofuðum okk­ur svo eft­ir að hafa verið sam­an í 10 mánuði, en Jök­ull bað mín þegar við vor­um í laut­ar­ferð í Central Park í New York,“ bæt­ir hún við. 

Mánaðarlegu þung­un­ar­próf­in mik­ill kvíðavald­ur

Þór­unn hafði fengið nei­kvæð þung­un­ar­próf í eitt og hálft ár þegar hún varð ófrísk af Matth­íasi. „Við höfðum verið frek­ar lengi að reyna að eign­ast barn og vor­um búin að setja okk­ur í sam­band við Li­vio ef til þess kæmi að við þyrft­um að fara í tækni­frjóvg­un. Ég var líka byrjuð á lyfj­um sem geta örvað egg­losið,“ seg­ir Þór­unn.

„Við þurft­um þó ekki að fara í tækni­frjóvg­un en vor­um búin að und­ir­búa okk­ur and­lega und­ir það,“ bæt­ir hún við. 

Að sögn Þór­unn­ar tek­ur það mjög mikið á and­lega líðan að ganga í gegn­um erfiðleika við barneign­ir. „Það að taka mánaðarlegu þung­un­ar­próf­in var orðinn mik­ill kvíðavald­ur fyr­ir mig og ég var mjög sorg­mædd þá daga sem ég tók próf­in. Þegar ég fékk svo loks­ins já­kvætt próf í apríl 2020 bjóst ég ekki við öðru en að fá nei­kvætt próf enn og aft­ur og átti því enga von á því að í þetta skiptið yrði það já­kvætt,“ út­skýr­ir hún.

„Það hellt­ust strax yfir mig fullt af til­finn­ing­um – gleði, ham­ingja, sjokk og stress. Ég fór svo fram og sagði Jökli að ég væri með smá gjöf fyr­ir hann og rétti hon­um þung­un­ar­prófið. Hann tók bara utan um mig og við grét­um sam­an og héld­um utan um hvort annað í lang­an tíma. Við trúðum þessu hvor­ug enda tók ég þung­un­ar­próf á hverj­um degi í átta daga áður en ég þorði að trúa þessu,“ bæt­ir hún við.

Þórunn lýsir miklum tilfinningarússíbana sem fylgdi því að fá loksins …
Þór­unn lýs­ir mikl­um til­finn­inga­rúss­íbana sem fylgdi því að fá loks­ins já­kvætt þung­un­ar­próf. Ljós­mynd/​Gunn­ar Jónatans­son

„Bjóst aldrei við því að ég gæti orðið ólétt svona óvænt“

Þór­unn seg­ir upp­lif­un­ina að kom­ast að því að hún væri ófrísk í seinna skiptið hafa verið allt öðru­vísi, enda hafi það ekki verið í plön­un­um að eign­ast annað barn al­veg strax. „Ég var að fylgj­ast með tíðahringn­um mín­um í síma­for­riti sem heit­ir Flo og fékk til­kynn­ingu um að ég væri orðin þrem­ur dög­um of sein. Ég spáði ekk­ert mikið í því þar sem ég hafði ekki verið mjög reglu­leg síðustu tíðahringa og tengdi þessa óreglu bara við brjósta­gjöf­ina,“ seg­ir Þór­unn.

„Ég ákvað samt að taka óléttu­próf sem varð strax já­kvætt. Þegar Jök­ull kom heim úr vinn­unni þenn­an dag þá sagði ég hon­um frá þessu og við fór­um bæði bara að skelli­hlæja. Eft­ir að hafa reynt í eitt og hálft ár með Matth­ías þá bjóst ég ein­hvern veg­inn aldrei við því að ég gæti orðið ólétt svona óvænt og án þess að vera að reyna það,“ bæt­ir hún við. 

Þórunn tengdi óreglulegan tíðahring í fyrstu við brjóstagjöfina, en það …
Þór­unn tengdi óreglu­leg­an tíðahring í fyrstu við brjósta­gjöf­ina, en það kom henni veru­lega á óvart þegar hún fékk já­kvætt þung­un­ar­próf.

And­lega hliðin betri á seinni meðgöng­unni

Þótt meðgöng­ur Þór­unn­ar hafi verið ólík­ar seg­ir hún þær báðar hafa verið dá­sam­leg­ar á sinn hátt. „Mér finnst and­lega hliðin vera betri á þess­ari meðgöngu, en það er vegna þess að þegar ég varð ólétt í fyrra skiptið var heims­far­ald­ur­inn í gangi og mik­il hræðsla og kvíði sem fylgdi hon­um,“ seg­ir Þór­unn.

„Á fyrri meðgöng­unni hafði ég all­an tím­ann í heim­in­um fyr­ir sjálfa mig. Þá var ég ekki að vinna vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins, ekki í fullu námi og ekki með lít­inn orku­bolta á heim­il­inu. Að því leyt­inu er þessi meðganga mjög ólík þeirri fyrri, en tím­inn líður mjög hratt á þess­ari meðgöngu og ég er ekki að fatta að ég sé kom­in 28 vik­ur á leið núna,“ út­skýr­ir hún.

Þórunn er gengin 28 vikur á leið.
Þór­unn er geng­in 28 vik­ur á leið.

Heilt yfir seg­ir Þór­unn seinni meðgöng­una hafa gengið mjög vel og líðanin góð bæði and­lega og lík­am­lega. „Ég verð að viður­kenna að ég gleymi stund­um að ég sé ólétt. Það er kannski svo­lítið þannig þegar maður er með tveggja ára gaur á heim­il­inu sem krefst mik­ill­ar at­hygli,“ seg­ir Þór­unn og hlær.

„Ég fékk ör­litla ógleði í tvær til þrjár vik­ur þegar ég var geng­in átta vik­ur á leið, en það jafnaði sig fljótt. Ég reyni að vera dug­leg að næra mig og hreyfa mig, en mín helsta hreyf­ing þessa dag­ana eru göngu­túr­ar. Mér finnst líka mik­il­vægt að slaka á og það besta sem ég geri er að fara í heitt bað á kvöld­in,“ bæt­ir hún við.

Þakk­lát fyr­ir góða heima­fæðingu

Matth­ías kom í heim­inn á fal­leg­um des­em­ber­degi árið 2020 í stof­unni heima hjá Þór­unni og Jökli. „Ég er svo þakk­lát að geta sagt að fæðing­in mín var því­lík drauma heima­fæðing og allt ferlið fór ná­kvæm­lega eins og ég hafði óskað mér,“ seg­ir Þór­unn.

„Kvöldið fyr­ir sett­an dag vor­um við Jök­ull að horfa á bíó­mynd­ir til klukk­an fimm um morg­un­inn. Ég man að ég hugsaði með mér að það væri al­veg týpískt að ég myndi fara af stað snemma um morg­un­inn af því við hefðum farið svo seint að sofa þetta kvöld, eða þessa nótt, og ég myndi því vera þreytt og ósof­in í fæðing­unni,“ rifjar Þór­unn upp.

Klukk­an átta um morg­un­inn vaknaði Þór­unn eft­ir þriggja tíma svefn til þess að fara á kló­settið. „Ég missti vatnið hressi­lega yfir allt baðher­berg­is­gólfið og vakti Jök­ul sem fór beint að pumpa lofti í laug­ina sem við höfðum fengið frá heima­fæðing­ar­ljós­móður­inni. Ég var mjög ró­leg þar sem eng­ir verk­ir voru byrjaðir, en svo klukk­an níu byrjuðu verk­irn­ir að koma og þeir voru mjög fljót­ir að aukast og verða reglu­leg­ir,“ seg­ir Þór­unn.

„Heima­fæðing­ar­ljós­móðirin og mamma komu svo til okk­ar og fljót­lega eft­ir það fór ég ofan í laug­ina. Mér leið mjög vel í laug­inni, fann fyr­ir miklu ör­yggi og hafði góða stjórn á verkj­un­um. Jök­ull hélt í hönd­ina mína all­an tím­ann, í gegn­um alla verk­ina og minnti mig reglu­lega á hafönd­un­ina sem við höfðum lært á fæðing­ar­nám­skeiði,“ bæt­ir hún við.

„Stuðningurinn sem ég fékk frá Jökli í gegnum ferlið var …
„Stuðning­ur­inn sem ég fékk frá Jökli í gegn­um ferlið var ómet­an­leg­ur og skipti mig mjög miklu máli.“

Var tengd­ur við fylgj­una í tvo tíma eft­ir fæðingu

Fljót­lega eft­ir að Þór­unn fór ofan í laug­ina hófst remb­ing­ur­inn og klukk­an 13:14, eða um fimm klukku­tím­um eft­ir að hún missti vatnið, kom Matth­ías í heim­inn. 

„Til­finn­ing­in að fá barnið sitt í fangið í fyrsta sinn er til­finn­ing sem ég mun aldrei gleyma. Þetta var svo fal­leg stund þar sem við for­eldr­arn­ir störðum bæði í aug­un á litla full­komna drengn­um okk­ar og brost­um og grét­um. Ég var líka svo stolt af sjálfri mér eft­ir þessa mögnuðu og valda­efl­andi upp­lif­un,“ seg­ir Þór­unn.

„Jök­ull hafði stillt sím­an­um sín­um upp á þrífót og náði að taka alla fæðing­una upp. Ég er hon­um svo æv­in­lega þakk­lát fyr­ir það enda horfði ég á mynd­bandið nokkr­um sinn­um á dag fyrstu dag­ana eft­ir fæðing­una og horfi stund­um ennþá á það í dag,“ bæt­ir hún við. 

Skemmtileg mynd sem sýnir fyrstu meðgöngu Þórunnar og að lokum …
Skemmti­leg mynd sem sýn­ir fyrstu meðgöngu Þór­unn­ar og að lok­um Þór­unni með frumb­urðinn í fang­inu. Ljós­mynd/​Gunn­ar Jónatans­son

Eft­ir fæðing­una fór Þór­unn inn í svefn­her­bergi þar sem Matth­ías tók brjóst í fyrsta sinn. „Ég fæddi svo fylgj­una en Matth­ías var ennþá tengd­ur henni þá. Fylgj­an var svo sett í skál og það var lítið stress á því að klippa á milli. Mér finnst gam­an að segja frá því að hann hafi verið tengd­ur við fylgj­una sína í tvo tíma eft­ir fæðing­una en þá fyrst klippti Jök­ull á milli,“ seg­ir Þór­unn.

„Við Jök­ull lág­um svo sam­an uppi í rúmi með strákn­um okk­ar á meðan ljós­móðirin og mamma gengu frá öllu frammi. Þegar ég fór svo fram stuttu seinna þá voru eng­in um­merki um að það hafi verið fæðing í gangi í stof­unni okk­ar nokkr­um klukku­stund­um áður,“ rifjar hún upp.

„Skrítnasta tilfinningin var svo þegar ljósmóðirin og mamma voru báðar …
„Skrítn­asta til­finn­ing­in var svo þegar ljós­móðirin og mamma voru báðar farn­ar og allt í einu vor­um við þrjú, litla fjöl­skyld­an, ein eft­ir heima.“

„Í dag snýst lífið fyrst og fremst um hann“

Spurð hvað hafi komið henni mest á óvart við móður­hlut­verkið seg­ir Þór­unn það vera hvað lífið hafi breyst mikið, en á ynd­is­leg­an hátt. Hún seg­ir for­gangs­röðun­ina á öllu í líf­inu jafn­framt hafa breyst eft­ir að hún varð mamma, enda séu flest­ar ákv­arðanir sem hún tek­ur í dag tekn­ar með Matth­ías í huga.

„Mér finnst oft skrítið að hugsa til þess hvernig lífið mitt var áður en ég eignaðist barn. Í dag snýst lífið fyrst og fremst um hann og maður hef­ur lít­inn tíma fyr­ir sjálf­an sig. Ég reyni að vera dug­leg að gera eitt­hvað fyr­ir sjálfa mig líka og sá tími er dýr­mæt­ur, en á sama tíma finnst mér all­ur tím­inn sem fer í að vera með barn­inu mínu og að sjá um hann miklu dýr­mæt­ari og skemmti­legri,“ seg­ir Þór­unn.

Matthías alsæll í fanginu á mömmu sinni.
Matth­ías al­sæll í fang­inu á mömmu sinni.

Þegar kem­ur að upp­eld­inu hafa Þór­unn og Jök­ull til­einkað sér það að bera virðingu fyr­ir til­finn­ing­um Matth­ías­ar. „Hann er á aldr­in­um þar sem hann er að upp­lifa marg­ar nýj­ar til­finn­ing­ar eins og til dæm­is sorg, til­hlökk­un og reiði. Mér finnst mik­il­vægt að sýna hon­um skiln­ing þegar hann er að tjá þess­ar til­finn­ing­ar. Ég reyni líka að ræða til­finn­ing­arn­ar við hann svo hann geri sér sjálf­ur grein fyr­ir því hvað hann sé að upp­lifa,“ út­skýr­ir Þór­unn.

„Við leggj­um líka mikla áherslu á að gera upp­byggi­lega hluti með hon­um sem eru líka skemmti­leg­ir. Pabbi hans er til dæm­is mjög dug­leg­ur að fræða hann um nátt­úr­una og dýr­in. Við erum núna stödd í fjöl­skyldu­fríi í Flórída og það fyrsta sem Matth­ías biður um á morgn­anna er að taka göngu­túr og skoða fisk­ana, eðlurn­ar og íkorn­ana,“ seg­ir Þór­unn.

Að lok­um þykir Þór­unni mik­il­vægt að mæður og verðandi mæður séu dug­leg­ar að minna sig á að þær séu að standa sig vel. „Það er oft mjög gott að fá ráð og ábend­ing­ar frá öðrum en móður inn­sæið veit alltaf best. Það er mik­il­vægt að treysta eig­in inn­sæi og fylgja því.“

Þórunn segir mikilvægt að Matthías fái að tjá tilfinningar sínar, …
Þór­unn seg­ir mik­il­vægt að Matth­ías fái að tjá til­finn­ing­ar sín­ar, en þau Jök­ull leggja mikla áherslu á að sína hon­um skiln­ing og ræða um til­finn­ing­ar við hann.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda