„Fyrstu mánuðirnir mest krefjandi“

Marteinn Urbancic og Sara Hrund Helgadóttir ásamt dóttur sinni Alexöndru …
Marteinn Urbancic og Sara Hrund Helgadóttir ásamt dóttur sinni Alexöndru Ellu Urbancic.

Marteinn Ur­bancic og unn­usta hans, Sara Hrund Helga­dótt­ir, eignuðust sitt fyrsta barn, Al­exöndru Ellu Ur­bancic, í fe­brú­ar 2021. Þau voru staðráðin í því að láta það ekki halda aft­ur af æv­in­týr­um sín­um og hef­ur fjöl­skyld­an því ferðast víðsveg­ar bæði inn­an­lands og er­lend­is síðastliðin tvö ár. 

Marteinn er menntaður at­vinnuflugmaður og hóf ný­verið störf hjá Icelanda­ir, en hann er um þess­ar mund­ir að venj­ast nýrri rútínu sem fylg­ir starf­inu og seg­ist vera spennt­ur fyr­ir því að sjá hvernig tekst að sam­tvinna flugið og fjöl­skyldu­lífið. Sam­hliða flug­inu starfar Marteinn sem fyr­ir­sæta og hef­ur gert í yfir ára­tug hjá Eskimo, en hann er einnig menntaður í markaðsfræði og sölu­stjórn­un. 

Marteinn og Sara kynnt­ust árið 2011 í gegn­um sam­eig­in­lega vin­konu og hafa verið óaðskilj­an­leg síðan. „Sag­an er þannig að vin­kona okk­ar komst inn á Face­book-aðgang Söru og „poke-aði“ nokkra sæta stráka sem hún þekkti. Ég beit á agnið og við ákváðum að hitt­ast á stefnu­móti með vin­konu henn­ar og vini mín­um. Þær eru ennþá góðar vin­kon­ur og við erum á leið í brúðkaup til henn­ar í sum­ar í Bretlandi,“ seg­ir Marteinn. 

Marteinn og Alexandra í góðum gír í sólinni.
Marteinn og Al­ex­andra í góðum gír í sól­inni.

Fæðing­in erfið og skemmti­leg upp­lif­un

Hinn 17. fe­brú­ar 2021 kom Al­ex­andra í heim­inn. Aðspurður seg­ir Marteinn það bæði hafa verið erfitt og skemmti­legt að vera á hliðarlín­unni í fæðingu dótt­ur sinn­ar. „Þetta er ótrú­legt ferli sem kon­ur ganga í gegn­um og maður ger­ir sér kannski ekki al­veg grein fyr­ir því hversu lang­ar og erfiðar fæðing­ar geta verið,“ seg­ir Marteinn.

„En ég hef aldrei verið jafn stolt­ur af Söru og þessa nótt sem við fór­um upp á fæðing­ar­deild. Ég reyndi eft­ir bestu getu að taka mynd­ir og svo skrifaði ég í „notes“ í sím­an­um allt sem gerðist frá því hún byrjaði að fá hríðir og þangað til Al­ex­andra fædd­ist. Það var mjög gam­an fyr­ir okk­ur að lesa fæðing­ar­sög­una dag­ana eft­ir fæðing­una því það fer allt í einn graut í hausn­um á manni á meðan þetta geng­ur yfir,“ rifjar hann upp. 

„Það er líka magnað að sjá ýmis persónueinkenni frá mér …
„Það er líka magnað að sjá ýmis per­sónu­ein­kenni frá mér og Söru í henni.“

„Erfitt að sjá litla barn­inu sínu vera illt“

Marteinn seg­ir fyrstu mánuðina hafa reynst mest krefj­andi, en að hans sögn var Al­ex­andra mikið kveisu­barn og fékk mikl­ar eyrna­bólg­ur, bak­flæði, hlaupa­bólu og svo var vara/​tungu­haftið klippt svo eitt­hvað sé nefnt. „Það var mjög erfitt að sjá litla barn­inu sínu vera illt og eiga erfitt með að tjá sig um hvað væri í gangi,“ seg­ir hann. 

Fjöl­skyld­an legg­ur mikið upp úr því að halda í fasta rútínu fyr­ir svefn­inn og les því alltaf sam­an á kvöld­in, en Marteini þykir þær stund­ir sér­stak­lega dýr­mæt­ar. „Það sem hef­ur verið mest gef­andi er að svæfa barnið sitt og lesa bók fyr­ir það. Það er svo mik­il nánd sem fylg­ir því að sitja sam­an í kósí-horn­inu henn­ar Al­exöndru og lesa sam­an. Hún er líka á þeim aldri núna að hún get­ur tjáð sig svo vel og seg­ir stund­um svo fal­lega hluti við mann sem bræða al­veg pabbahjartað,“ seg­ir Marteinn. 

Feðginin alsæl í skíðaferð í Austurríki.
Feðgin­in al­sæl í skíðaferð í Aust­ur­ríki.

„Lífið krefst meira skipu­lags með barn“

Marteinn seg­ir for­gangs­röðun­ina hafa gjör­breyst eft­ir að hann varð pabbi. „Maður plan­ar lífið í kring­um Al­exöndru og henn­ar þarf­ir, en á sama tíma þá tók­um við Sara meðvitaða ákvörðun um að láta henn­ar komu ekki breyta líf­inu of mikið – hún bara kem­ur með okk­ur til út­landa eða út að borða,“ út­skýr­ir Marteinn. 

„Lífið krefst meira skipu­lags með barn, en maður þarf að hugsa fram í tím­ann og skipu­leggja sig í kring­um lúra og mat­máls­tíma. Það er aðeins erfiðara að hoppa út úr húsi fyrstu mánuðina, en það er strax miklu auðveld­ara núna þegar hún er orðin tveggja ára,“ bæt­ir hann við. 

Stuð í sundi!
Stuð í sundi!

Auðvelt að setja barnið sitt í fyrsta sæti

Spurður út í hvað hafi komið hon­um mest á óvart við föður­hlut­verkið seg­ir Marteinn það vera hve auðvelt það er að setja barnið sitt í fyrsta sætið fram yfir allt annað. „Það er líka ótrú­legt hvað tím­inn líður hratt og hvað þau læra hluti hratt. Hún er al­gjör svamp­ur í augna­blik­inu og orðaforðinn vex með hverj­um degi,“ út­skýr­ir hann.

„Svo hef­ur það komið mér á óvart hversu mikl­ar sam­ræður er hægt að eiga við tveggja ára barn og hversu sterk­ar skoðanir börn geta haft á mat, föt­um, tónlist og fleiru,“ bæt­ir hann við. 

Leggja áherslu á kurt­eisi og setja mörk

Í upp­eld­inu hafa Marteinn og Sara verið mjög sam­taka og haldið í sömu áhersl­ur. „Ég held að það sé mik­il­vægt að börn fái sömu línu hjá for­eldr­um sín­um. Við höf­um lagt mikið upp úr kurt­eisi, til dæm­is að þakka alltaf fyr­ir sig og spyrja fal­lega hvort hún megi fá hluti. Við höf­um líka verið dug­leg að setja henni mörk svo hún kunni að fá svarið nei. Við veit­um henni umb­un fyr­ir já­kvæða hegðun og hunds­um nei­kvæða hegðun eft­ir besta megni, en það virk­ar mun bet­ur en skamm­ir,“ seg­ir Marteinn. 

„Al­ex­andra er á dá­sam­leg­um leik­skóla sem heit­ir Brákar­borg, en þar er lagt upp með lausn­ar­hringn­um þar sem börn­un­um er kennd­ur já­kvæður agi og gagn­kvæm virðing í sam­skipt­um. Þeim er til dæm­is kennt að „stjórna sér“, bjóða knús og segja fyr­ir­gefðu sem hef­ur gengið vel með að yf­ir­færa heim. Svo not­um við skjánotk­un sem spari, oft­ast bara um helg­ar,“ seg­ir Marteinn og bæt­ir við að þau leggi áherslu á að skila­boð séu skýr og hafa góða rútínu ávallt í for­gangi.

Skíðaferðin til Aust­ur­rík­is stend­ur upp úr

Fjöl­skyld­an hef­ur verið dug­leg að ferðast sam­an síðastliðin tvö ár, enda ákváðu Marteinn og Sara að halda áfram að lifa líf­inu og leyfa dótt­ur sinni að koma með hvert sem þau færu, jafnt inn­an- sem ut­an­lands.

„Við höf­um reynt að vera dug­leg að heim­sækja bróður minn og hans fjöl­skyldu í Kaup­manna­höfn, en hann á son sem er sex dög­um yngri en Al­ex­andra. Við höf­um líka farið í sum­ar­frí með hana til Króa­tíu og Ítal­íu, sem og í skíðaferð til Aust­ur­rík­is og jóla­frí til Lanzarote,“ seg­ir Marteinn.

Marteinn seg­ir ferðalög­in með Al­exöndru hafa gengið von­um fram­ar. „Hún er mjög dug­leg í flug­vél og finnst alltaf gam­an að ferðast með okk­ur, en skemmti­leg­ast var þó að fara í skíðaferðina þar sem Theó litli frændi henn­ar kom með líka og þau fengu að leika sam­an alla daga,“ seg­ir hann og bæt­ir við að þau hafi verið dug­leg að ferðast inn­an­lands í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um, en þá var Al­ex­andra sex mánaða. 

„Það hef­ur komið mest á óvart hvað fólk er­lend­is bros­ir mikið til Al­exöndru og hef­ur gam­an af litl­um börn­um. Ég hafði alltaf mest­ar áhyggj­ur af því að ég væri með of ungt barn sem væri að gráta og skemma frí fyr­ir öðrum, en það var akkúrat and­stæðan,“ út­skýr­ir Marteinn. 

Besta ferðaráð Marteins er að hafa nóg fyr­ir börn­in að gera í flug­vél­inni til að stytta tím­ann. „Það get­ur verið erfitt fyr­ir lít­il börn að sitja í marga klukku­tíma og hafa ekk­ert að gera á meðan,“ seg­ir hann og bæt­ir við að það hafi komið hon­um veru­lega á óvart hversu mikið dót fylg­ir litl­um börn­um sem þarf að taka með til út­landa.

Spennt­ur fyr­ir sumr­inu í háloft­un­um

Í byrj­un maí lauk Marteinn þjálf­un hjá Icelanda­ir, en hann er spennt­ur að sjá hvernig það mun ganga að sam­tvinna flugið og fjöl­skyldu­lífið á næstu mánuðum. „Ég hef ekki trú á öðru en að þetta gangi vel upp. Við eig­um bæði mjög gott bak­land – ömm­ur og afar bíða í röðum eft­ir að passa þenn­an engil,“ seg­ir Marteinn.

„Svo er flugið þannig að það koma oft nokkr­ir dag­ar inn á milli þar sem maður er í fríi í miðri viku, þannig maður get­ur nýtt þá daga í sam­veru og sótt Al­exöndru fyrr á leik­skól­ann. Svo mun­um við reyna að nota frí­dag­ana í að skreppa í heim­sókn til frænda í Dan­mörku með Al­exöndru,“ bæt­ir hann við. 

Sum­arið framund­an er því að mestu ópl­anað en Marteinn seg­ir að fjöl­skyld­an muni þó reyna að fara eitt­hvert út í sól­ina þegar tím­inn gefst. „Ég er sjálf­ur að fara að hlaupa Laug­ar­veg­inn Ultra í júlí og á ætt­ar­mót í Vest­manna­eyj­um,“ seg­ir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda