Glímir þú við frjósemisvanda?

Glímir þú við frjósemisvanda?
Glímir þú við frjósemisvanda? Ljósmynd/Unsplash/Sage Friedman

Sig­ur­birna Hafliðadótt­ir meist­ara­nemi í klín­ískri sál­fræði við Há­skól­ann í Reykja­vík leit­ar að kon­um á aldr­in­um 18 til 45 ára sem glíma við frjó­sem­is­vanda og telja sig einnig glíma við ein­kenni kvíða, þung­lynd­is og/​eða streitu.

Í rann­sókn­inni verða áhrif hug­rænn­ar at­ferl­is­meðferðar (HAM), sem veitt er í gegn­um in­ter­netið, á kvíða, stritu og/​eða þung­lyndi könnuð hjá kon­um með frjó­sem­is­vanda. Hug­ræn at­ferl­is­meðferð er mikið notað meðferðarform sem ein­blín­ir á að vinna með hugs­an­ir, til­finn­ing­ar og hegðun ein­stak­lings­ins. 

All­ir þátt­tak­end­ur fá frí­an aðgang að netmeðferðinni Overcome Fer­tility Stress sem gef­in er út af fyr­ir­tæk­inu AICBT sem er í eigu Fjólu Dögg Helga­dótt­ur, doktor í klín­ískri sál­fræði sem hef­ur hannað for­ritið frá ár­inu 2013. Fjóla Dögg er jafn­framt ábyrgðarmaður rann­sókn­ar­inn­ar.

Áhuga­sam­ir geta lesið meira um rann­sókn­ina og sótt um að taka þátt hér

Sigurbirna Hafliðadóttir er meistaranemi í klínískri sálfræði.
Sig­ur­birna Hafliðadótt­ir er meist­ara­nemi í klín­ískri sál­fræði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda