„Ekki frábær þegar kemur að því að skipuleggja mig fram í tímann"

Bókin Ég þori! Ég get! Ég vil! er komin í …
Bókin Ég þori! Ég get! Ég vil! er komin í bókabúðir. Ljósmynd/Heiða Helgadóttir

Linda Ólafs­dótt­ir mynd­höf­und­ur fagnaði út­gáfu bók­ar sinn­ar, Ég þori! Ég get! Ég vil! í gær­dag, á sjálf­an kvenna­frí­dag­inn. Linda er þekkt fyr­ir list­ræna hæfi­leika sína og hef­ur mynd­lýst fjölda bóka sem hafa verið gefn­ar út hér­lend­is og er­lend­is. Hún á tvö börn ásamt eig­in­manni sín­um, Eggerti Gísla­syni, og ætl­ar fjöl­skyld­an að njóta vetr­ar­frís­ins til hins ýtr­asta en á sem ró­leg­ast­an hátt. 

Ég þori! Ég get! Ég vil!

„Þetta hef­ur verið anna­sam­ur tími en bók­in er nú kom­in í búðir. Hún kom upp­haf­lega út í Banda­ríkj­un­um í mars, þar sem ég vann hana með banda­rísku for­lagi, í fyrstu. Ég þori! Ég get! Ég vil! kom út á Íslandi hinn 19. októ­ber en það var haldið út­gáfu­hóf í fyrra­dag í til­efni af kvenna­frí­deg­in­um,“ seg­ir Linda, en bók henn­ar fjall­ar bæði um sögu kvenna­frí­dags­ins og bar­áttu kvenna í gegn­um sög­una. 

Bók­in er fal­lega mynd­lýst af Lindu og er sögð henta börn­um sex til tólf ára, en aðspurð seg­ir Linda bæk­ur af þess­um toga um svona mál­efni vera fjöl­skyldu­bæk­ur fyr­ir all­an ald­urs­hóp. 

Í bókinni er farið yfir sögu kvennafrídagsins og langa baráttu …
Í bók­inni er farið yfir sögu kvenna­frí­dags­ins og langa bar­áttu kvenna. Ljós­mynd/​Linda Ólafs­dótt­ir

„Aðal­atriðið er sam­ver­an“

Ásamt því að starfa sem mynd­höf­und­ur þá er Linda tveggja barna móðir. Son­ur henn­ar, Dag­ur, er 22 ára, og dótt­ir henn­ar, Lára Rún, er 15 ára göm­ul. Bæði búa þau í for­eldra­hús­um og er fjöl­skyld­an dug­leg að njóta sam­veru­stunda. 

Er vetr­ar­fríið að koma aft­an að ykk­ur for­eldr­un­um?

„Ekki í þetta sinn en ég man vel að þegar þau voru yngri þá kom þessi tími oft aft­an að manni. Ég er ekki frá­bær þegar kem­ur að því að skipu­leggja mig fram í tím­ann og það var nú ekki oft að ég var búin að panta sum­ar­bú­stað eða álíka í svona frí­um," seg­ir Linda og hlær.

Linda ásamt fjölskyldu sinni.
Linda ásamt fjöl­skyldu sinni. Ljós­mynd/​Linda Ólafs­dótt­ir

Eru þið með ein­hver fjöl­skyldu­plön í frí­inu?

„Bara já og nei. Þau eru auðvitað orðin svo stór í dag, en við sótt­um mikið lista­söfn þegar þau voru yngri og eydd­um hluta úr degi þar. Ég man til dæm­is að við heim­sótt­um Land­náms­sýn­ing­una og Hvala­safnið sam­an í vetr­ar­frí­inu. Ég var að vísu að vinna að bók­um um efnið á þeim tíma þannig að heim­sókn­irn­ar nýtt­ust mér sem rann­sókn­ar­vinna,“ út­skýr­ir Linda.

Eru börn­in teikn­ar­ar?

„Þau eru bæði mjög list­ræn og skap­andi, en ekk­ert endi­lega teikn­ar­ar. Þau eru bæði á fullu í tónlist og Dag­ur legg­ur stund á nám í graf­ískri hönn­un. Kannski hafa all­ar heim­sókn­irn­ar á lista­söfn­in í vetr­ar­frí­un­um ýtt und­ir sköp­un­ar­gleðina,“ seg­ir hún í lok­in.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda