41 árs og var að eignast sitt tíunda barn

Þetta er barnaskari.
Þetta er barnaskari. Samsett mynd

Phil­ip Ri­vers, fyrr­ver­andi leikmaður í NFL-deild­inni, greindi frá því að hann hefði eign­ast sitt tí­unda barn nú á dög­un­um. Ri­vers er aðeins 41 árs gam­all en 21 ár eru á milli elsta og yngsta barns­ins. 

Ri­vers kvænt­ist eig­in­konu sinni, Tiff­any Ri­vers, árið 2001. Stuttu eft­ir brúðkaupið urðu þau ófrísk að frumb­urði sín­um og fyrstu dótt­ur. Í dag eiga hjón­in sjö dæt­ur og þrjá syni, en nýj­asti fjöl­skyldumeðlim­ur­inn er dreng­ur. 

„Þetta er æðis­legt og Tiff­any er ótrú­leg,“ sagði Ri­vers við AL.com. „Það skipt­ir engu máli hvort þetta sé fyrsta barnið eða það tí­unda, hvert eitt og ein­asta er krafta­verk.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda