„Ég naut þess alls ekki að vera ólétt“

Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir var 23 ára þegar hún varð ófrísk …
Þórkatla Lunddal Friðriksdóttir var 23 ára þegar hún varð ófrísk að sínu fyrsta barni. Í dag á hún tvær dætur með unnusta sínum.

Þórkatla Lund­dal Friðriks­dótt­ir var 23 ára þegar hún varð ófrísk að sínu fyrsta barni. Hún upp­lifði erfiða meðgöngu og naut þess ekki að vera ófrísk, en hún fékk bæði slæma grind­argliðnun og svo­kallað meðgöngu­kvef sem hún glím­ir enn við í dag. Ári eft­ir að elsta dótt­ir henn­ar kom í heim­inn varð hún ófrísk aft­ur og sag­an end­ur­tók sig. 

Í dag er Þórkatla 27 ára og á tvær dæt­ur, Em­il­íu sem er þriggja ára og Fann­eyju sem er eins árs, ásamt unn­usta sín­um Há­koni Bryde. Hún starfar sem leik­skólaliði en sam­hliða því er hún að læra að verða nagla­fræðing­ur og er að byrja í sjúkra­liðanámi. 

Fjölskyldan alsæl í þriggja ára afmælisveislu Emilíu.
Fjöl­skyld­an al­sæl í þriggja ára af­mæl­is­veislu Em­il­íu.

Þórkatla og Há­kon kynnt­ust árið 2015 og hafa verið óaðskilj­an­leg síðan. Þau trú­lofuðu sig svo árið 2018 þegar Há­kon fór á skelj­arn­ar fyr­ir fram­an Eif­fel turn­inn í Par­ís.

„Ég fór með vin­konu minni og kær­ast­an­um henn­ar í partí í maí 2015 með fullt af fólki. Ég var ekki búin að vera þar inni í fimm mín­út­ur þegar Há­kon labbaði upp að mér og kynnti sig. Við töluðum sam­an allt kvöldið og skipt­umst síðan á síma­núm­er­um í lok kvölds­ins. Dag­inn eft­ir hitt­umst við svo aft­ur og höf­um verið sam­an síðan,“ rifjar hún upp. 

„Níu árum, íbúð, tveim­ur börn­um og mörg­um ut­an­lands­ferðum seinna, þá finnst mér mjög dýr­mætt að eiga svona marg­ar minn­ing­ar sam­an. Við feng­um til dæm­is að sjá hvort annað út­skrif­ast bæði úr mennta­skóla og há­skóla,“ bæt­ir hún við. 

Hákon og Þórkatla hafa verið saman í níu ár og …
Há­kon og Þórkatla hafa verið sam­an í níu ár og eiga því marg­ar dýr­mæt­ar minn­ing­ar sam­an. Hér eru þau á Þjóðhátíð árið 2019.

Ólétt­an var mik­ill létt­ir

Aðspurð seg­ir Þórkatla það hafa verið mik­inn létti þegar hún komst að því að hún væri ófrísk að sínu fyrsta barni, en þá höfðu þau Há­kon verið að reyna í rúmt ár og því var ólétt­an mjög kær­kom­in. „Ég var svo glöð, spennt, stressuð, ánægð og bara all­ur til­finn­ingaskal­inn. Við vor­um rosa­lega til­bú­in í þetta hlut­verk þótt við vær­um bæði ung, bara 23 ára, en þá vor­um við líka búin að vera sam­an lengi og búin að gera margt sam­an þannig þetta gat ekki komið á betri tíma fyr­ir okk­ur,“ seg­ir hún. 

Rúmu ári eft­ir að fyrri dótt­ir Þór­kötlu og Hákons kom í heim­inn verður hún ófrísk aft­ur. „Það var smá sjokk að þetta hefði tek­ist svona snemma, en við vild­um alltaf hafa stutt á milli barn­anna okk­ar svo þetta gæti ekki verið full­komn­ara í dag. Þær eru bestu vin­kon­ur og munu von­andi alltaf vera það,“ seg­ir hún.

Fanney og Emilía eru miklar vinkonur.
Fann­ey og Em­il­ía eru mikl­ar vin­kon­ur.

Þórkatla seg­ir báðar meðgöng­urn­ar hafa verið krefj­andi, en hún upp­lifði ýmsa kvilla og er enn þann dag í dag að glíma við ein­kenni frá fyrstu meðgöng­unni. „Meðgöng­urn­ar gengu ekk­ert frá­bær­lega og ég get al­veg sagt að ég naut þess alls ekki að vera ólétt. Ég fékk mikla grind­argliðnun og mik­inn verk í líf­beinið. Á 17. viku fékk ég svo mikið meðgöngu­kvef sem gerði það að verk­um að ég svaf ekk­ert alla meðgöng­una því það háði mér svo mikið, en ég er enn að glíma við þetta kvef í dag fjór­um árum seinna,“ seg­ir hún. 

„Meðgöng­urn­ar voru mjög svipaðar, en ég var kom­in stutt á leið í seinna skiptið þegar ég vissi að ég væri að ganga með aðra stelpu því mér leið ná­kvæm­lega eins nema var bara með miklu ýkt­ari ein­kenni,“  bæt­ir hún við. 

Þórkatla segist fljótlega hafa vitað að þau ættu von á …
Þórkatla seg­ist fljót­lega hafa vitað að þau ættu von á ann­arri stelpu.

Átak­an­leg fæðing í miðjum heims­far­aldri

Þótt meðgöng­urn­ar hafi verið svipaðar seg­ir Þórkatla fæðing­arn­ar hafa verið gjör­ólík­ar. „Fyrri fæðing­in gekk mjög illa því dótt­ir mín var í fram­höfuðstöðu sem eng­inn vissi af fyrr en hún var fædd, þannig ég var hrika­lega lengi í hríðum og ekk­ert að ger­ast. Ég var líka lengi í fæðing­unni sjálfri, en hún var í miðjum heims­far­aldri þannig að Há­kon mátti ekki vera hjá mér fyrr en virk fæðing var byrjuð sem var öm­ur­legt og það tók mikið á að hafa eng­an hjá sér stór­ann hluta ferl­is­ins,“ seg­ir hún. 

„Eft­ir rúm­an sól­ar­hring fyllt­ist her­bergið hins veg­ar af fólki því það benti allt til þess að það þyrfti að hjálpa henni, en svo kom hún í heim­inn án inn­gripa stuttu síðar. Eft­ir fæðingu þurfti ég svo að fara ein niður á sæng­ur­legu­deild og Há­kon heim, það var hrika­lega erfitt fyr­ir okk­ur bæði eft­ir það sem gekk á,“ bæt­ir hún við. 

Þórkatla seg­ir þessa reynslu hafa valdið henni kvíða þegar hún komst að því að hún væri orðin ófrísk aft­ur, en hún reyndi þó að hugsa sem minnst um það á meðgöng­unni. „Morg­un­inn 1. mars 2022 byrja ég að fá hríðar, en ég fór á Tax­free í Hag­kaup, í baunasúpu um kvöldið og þegar við kom­um heim þá byrjaði allt með hraði. Við feng­um tengda­for­eldra mína til að passa Em­il­íu yfir nótt­ina og fór­um upp á deild þar sem hún fædd­ist rétt eft­ir miðnætti,“ seg­ir hún. 

Foreldrarnir með Fanneyju nýfædda á fæðingadeildinni.
For­eldr­arn­ir með Fann­eyju ný­fædda á fæðinga­deild­inni.

„Ég átti því drauma­fæðingu með Fann­eyju sem er ánægju­leg lífs­reynsla að eiga, nema að það leið yfir Há­kon í fyrsta sinn á æv­inni, en það er annað mál,“ bæt­ir hún við og hlær.

Emilía í skýjunum með litlu systur sína.
Em­il­ía í skýj­un­um með litlu syst­ur sína.

„Móður­hlut­verkið gef­ur líf­inu til­gang“

Aðspurð seg­ir Þórkatla lífið hafa gjör­breyst eft­ir að hún varð mamma. „Þú get­ur ekki leng­ur labbað bara út án þess að ráðstafa öllu áður. Þú þarft að vera fyr­ir­mynd í einu og öllu því það er fylgst vel með þér. Móður­hlut­verkið gef­ur líf­inu til­gang, það er al­veg á hreinu. Maður vill vera besta út­gáf­an af sjálf­um sér sem end­ur­spegl­ast svo í þær,“ seg­ir hún. 

Mæðgurnar á eins árs afmæli Emilíu.
Mæðgurn­ar á eins árs af­mæli Em­il­íu.

„Það besta við móður­hlut­verkið er klár­lega að eiga tvær bestu vin­kon­ur sem ég elska svona hrika­lega fast. Maður vill allt fyr­ir þær gera, sjá þær vaxa og dafna og vera svona mikl­ir húm­orist­ar eins og þær eru. Ég get ekki beðið eft­ir að fylgja þeim út lífið og sjá enn meira af þess­um snill­ing­um sem við eig­um,“ seg­ir Þórkatla. 

„Það sem er mest krefj­andi við móður­hlut­verkið er að sjá þær veik­ar, en það brýt­ur í mér hjartað í hvert skipti. Svo get­ur líka verið krefj­andi að halda and­liti þegar á reyn­ir því þú stimpl­ar þig ekk­ert út úr móður­hlut­verk­inu. Það er ekki alltaf dans á rós­um með tvær litl­ar en ég legg mikið upp úr því að halda mér ró­legri í erfiðum aðstæðum. Þetta eru allt tíma­bil sem maður þarf að kom­ast í gegn­um,“ bæt­ir hún við. 

Fanney í stuði á eins árs afmælisdaginn sinn.
Fann­ey í stuði á eins árs af­mæl­is­dag­inn sinn.

Tek­ur móður sína til fyr­ir­mynd­ar í upp­eld­inu

Spurð út í upp­eldið seg­ist Þórkatla taka móður sína til fyr­ir­mynd­ar. „Ég hef alltaf getað leitað til henn­ar þegar eitt­hvað kem­ur upp á og hún er með svör við öllu. Mig lang­ar ekk­ert meira en að eiga svo­leiðis sam­band við dæt­ur mín­ar líka. Núm­er eitt, tvö og hundrað er svo að koma fram af virðingu við alla og tala við aðra eins og þú vilt að það sé talað við þig því þær spegla allt sem við ger­um og segj­um. Ég legg mikið upp úr því að þær séu kurt­eis­ar og góðar við alla því það á eng­inn neitt annað skilið,“ seg­ir hún. 

Mæðgurnar á góðri stundu.
Mæðgurn­ar á góðri stundu.

Hvað er framund­an hjá ykk­ur?

Það er fullt spenn­andi framund­an. Ég er að byrja í sjúkra­liðanám­inu, stelp­urn­ar eiga bráðum tveggja og fjög­urra ára af­mæli og svo ætl­um við í ein­hverj­ar ut­an­lands­ferðir á ár­inu. Við hlökk­um mikið til sum­ars­ins og för­um von­andi í okk­ar fyrstu úti­legu sam­an og svo stefni ég á að klára nagla­skól­ann sem ég er í. 

Síðan mun­um við bara halda áfram í því sem við erum að gera. Stelp­urn­ar eru í íþrótta­skóla og Em­il­ía var að byrja að æfa fót­bolta svo það er fullt til að hlakka til á ár­inu.“

Það er margt skemmtilegt framundan hjá fjölskyldunni.
Það er margt skemmti­legt framund­an hjá fjöl­skyld­unni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda