Fermdist ein í sóknarkirkju fjölskyldunnar í Hróarstungu

Guðrún Katrín Helgadóttir fermdist í Kirkjubæjarkirkju í Hróarstungu þann 2. …
Guðrún Katrín Helgadóttir fermdist í Kirkjubæjarkirkju í Hróarstungu þann 2. júlí 2023. Ljósmynd/Tara Tjörva

Guðrún Katrín Helga­dótt­ir fermd­ist í Kirkju­bæj­ar­kirkju í Hró­arstungu þann 2. júlí 2023. Móðir henn­ar, Guðfinna Harpa Árna­dótt­ir bóndi og ráðgjafi, seg­ir ferm­ing­ar­und­ir­bún­ing­inn hafa gengið von­um fram­ar og verið afar skemmti­leg­ur enda hafi hann verið mikið sam­vinnu­verk­efni fjöl­skyldu og vina. 

„Kirkju­bæj­ar­kirkja er sókn­ar­kirkj­an okk­ar og þar hafa marg­ar at­hafn­ir í fjöl­skyld­unni farið fram – ferm­ing­ar okk­ar systkin­anna og skírn­ir okk­ar flestra, en þar var Guðrún skírð og bróðir henn­ar sömu­leiðis. Kirkj­an er fal­leg göm­ul sveit­ar­kirkja með mikla sögu sem prest­ur­inn kom inn á í sinni ræðu. Guðrún fermd­ist ein og tók því tölu­vert mikið þátt í at­höfn­inni með lestri og fékk að velja hluta af þeim sálm­um sem voru sungn­ir. Það var mjög skemmti­legt,“ seg­ir Guðfinna.

Kirkjubæjarkirkja er sjarmerandi gömul sveitakirkja með mikla sögu.
Kirkju­bæj­ar­kirkja er sjarmer­andi göm­ul sveita­kirkja með mikla sögu.

Að at­höfn lok­inni var ferm­ing­ar­veisl­an hald­in í fé­lags­heim­il­inu Tungu­búð sem er rétt við kirkj­una og voru gest­ir um 90 tals­ins.

„Guðrún, for­eldr­ar mín­ir og syst­ur voru með mér í mat­ar­stúss­inu. Síðustu dag­ana fyr­ir ferm­ing­una bætt­ist svo föður­fólkið henn­ar Guðrún­ar við, í skreyt­ing­arn­ar og upp­setn­ing­una á saln­um og veislu­haldið sjálft auk þess sem ómet­an­leg vin­kona mín aðstoðaði á loka­metr­un­um og í veisl­unni sjálfri. Svo átt­um við mæðgur skemmti­leg­ar sam­veru­stund­ir þegar við vor­um að velja skó og skart, í tím­an­um hjá nagla­fræðingn­um og að velja ljós­mynd­ir til að fram­kalla í skreyt­ing­ar og fleira og fleira,“ seg­ir Guðfinna.

Guðrún tek­ur und­ir með móður sinni, en henni þótti gam­an að eyða tíma með fjöl­skyld­unni í und­ir­bún­ingn­um. „Mér finnst mjög skemmti­legt að plana og græja og gera. Skemmti­leg­ast­ur þótti mér dag­ur­inn sem við vor­um að klára að skreyta og það var líka góð reynsla að baka kran­sa­kök­una,“ seg­ir hún.

Mægðurnar Guðfinna og Guðrún segja fermingarundirbúninginn hafa gengið afar vel.
Mægðurn­ar Guðfinna og Guðrún segja ferm­ing­ar­und­ir­bún­ing­inn hafa gengið afar vel.

Frum­raun mæðgn­anna í kran­sa­köku­bakstri

Guðfinna seg­ir Guðrúnu hafa lagt mikið af mörk­um í und­ir­bún­ing­inn. „Guðrún lagði mikið af mörk­um í und­ir­bún­ingi. Bæði hafði hún mjög skýra sýn á hvernig hún vildi haga veisl­unni, veit­ing­um og skreyt­ing­um og var líka mjög dug­leg í und­ir­bún­ingn­um sjálf­um bæði við það sem við gerðum með löng­um fyr­ir­vara og eins dag­ana fyr­ir ferm­ing­una,“ seg­ir hún. 

„Við gerðum nán­ast all­ar veit­ing­arn­ar sjálf og það er mik­il vinna sem hún tók þátt í. Til dæm­is bakaði hún litl­ar mar­engsrós­ir sem við fyllt­um með rjóma og berj­um, aðstoðaði við að gera osta­kök­ur í lít­il glös og við hjálpuðumst að við að baka kran­sa­kök­una og það var frum­raun okk­ar beggja í kran­sa­köku­bakstri,“ bæt­ir hún við. 

Guðfinna segir Guðrúnu hafa tekið virkan þátt í undirbúninginum, en …
Guðfinna seg­ir Guðrúnu hafa tekið virk­an þátt í und­ir­bún­ing­in­um, en þær mæðgur hjálpuðust að við að baka kran­sa­kök­una.

Í veisl­unni var ferm­ing­ar­barnið með Kahoot-spurn­inga­leik um sig sjálfa og ým­is­legt sem teng­ist henn­ar áhuga­mál­um og afþrey­ingu, en Guðfinna seg­ir það hafa slegið ræki­lega í gegn í veisl­unni. „Það var virki­lega skemmti­legt og mikið hlegið. Vina­hóp­ur­inn henn­ar rúllaði því auðvitað upp en aðrir lærðu ör­ugg­lega eitt­hvað um ferm­ing­ar­barnið,“ seg­ir Guðfinna.

„Við vor­um svo með krukku og litla miða þar sem gest­ir gátu sent henni heil­ræði eða sett fram ágisk­an­ir um framtíðarstarf. Það var líka mynda­bás og hvött­um við yngra fólkið til að taka eldra fólkið með sér þangað til að fá mynd­ir af gest­um,“ bæt­ir hún við.

Í veislunni var krukka og litlir miðar þar sem gestir …
Í veisl­unni var krukka og litl­ir miðar þar sem gest­ir gátu sent ferm­ing­ar­barn­inu heil­ræði.

Hvernig skreyt­ing­ar voruð þið með í veisl­unni?

„Við skreytt­um borðin með villi­blóma­vönd­um í litl­um glær­um flösk­um, teljós­um í fal­leg­um kerta­stjök­um, ljós­mynd­um af Guðrúnu sem við fram­kölluðum hjá Prenta­gram og dreifðum um borðin og fal­leg­um áprentuðum serví­ett­um.

Föður­amma Guðrún­ar gerði blóm­vend­ina úr blóm­um af staðnum og þeir settu mik­inn svip á sal­inn. Aðrar skreyt­ing­ar í saln­um voru stór blöðru­bogi í þemalit­un­um, blöðrur skreyttu líka mynda­bás­inn og svo voru há kerti í stjök­um og auðvitað ferm­ing­ar­kertið, sálma­bók og gesta­bók á hliðar­borði. Við hengd­um líka upp keppn­is­gall­ann henn­ar sem hún not­ar í fim­leik­un­um og ljós­mynd­ir af henni.“

Salurinn var fallega skreyttur með villiblómum, blöðruboga, kertum og ljósmyndum.
Sal­ur­inn var fal­lega skreytt­ur með villi­blóm­um, blöðru­boga, kert­um og ljós­mynd­um.

En veit­ing­ar?

„Við gerðum lang­stærsta hlut­ann af veit­ing­un­um frá grunni og vor­um með allt í smá­rétta­formi. Guðrún réði öll­um rétt­un­um og þeir voru fjöl­breytt­ir og kannski svo­lítið ósam­stæðir en það var gam­an að geta sagt frá því að þarna væri sýn­is­horn af henn­ar upp­á­halds­rétt­um og all­ir hefðu átt að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi. Einn rétt­ur bætt­ist til dæm­is við eft­ir ferm­ingu hjá frænku henn­ar því Guðrúnu fannst hann svo góður.“

Guðrún bakaði þessar girnilegu marengsrósir sem voru fylltar með rjóma …
Guðrún bakaði þess­ar girni­legu mar­engsrós­ir sem voru fyllt­ar með rjóma og berj­um.

„Við vor­um með ósætt hlaðborð og svo sætt hlaðborð. Á ósæta hlaðborðinu var graf­inn lax, heitreykt gæs og grafið ær­kjöt og brauð með. Svo vor­um við með snitt­ur með pestó-tóm­ata-og mozzar­ella­sal­ati, litl­ar kjöt­boll­ur, kjúk­linga- og lamba­grill­spjót, bei­kon­vafðar döðlur og heit­an brauðrétt í muff­insút­færslu. Á sæta hlaðborðinu var kran­sakaka, litl­ar osta­kök­ur, mar­engsrós­ir með rjóma og berj­um, litl­ar súkkulaðikök­ur sem heita svartigald­ur og er hefð fyr­ir í flest­um boðum í fjöl­skyld­unni og með þessu voru jarðarber, fransk­ar makkarón­ur og kransa­bit­ar.“

Hér má sjá hluta af veitingunum sem prýddu sæta borðið.
Hér má sjá hluta af veit­ing­un­um sem prýddu sæta borðið.

Vildi hafa litaþema í stíl við kjól­inn

Spurðar út í litaþemað seg­ist Guðrún hafa viljað hafa litaþemað í stíl við kjól­inn sem hún valdi sér, en kjóll­inn er fag­ur­blár frá versl­un­inni NA-KD og skórn­ir frá JoD­is.

„Við vor­um með blá­an lit í skreyt­ing­um og svo hlýja grá­brúna, beige-lita og ljós­bleika tóna á móti í blöðrum og serví­ett­um. Ferm­ing­ar­kjóll­inn var í bláu og Guðrún bað okk­ur í nán­ustu fjöl­skyld­unni að vera í bláu líka og það kom mjög vel út á fjöl­skyldu­mynd­un­um að við vær­um svona aðeins í stíl, þó tón­arn­ir væru ólík­ir,“ seg­ir Guðfinna.

Fjölskyldan klæddi sig upp í stíl við litaþemað sem kom …
Fjöl­skyld­an klæddi sig upp í stíl við litaþemað sem kom skemmti­lega út í ferm­ing­ar­mynda­tök­unni. Ljós­mynd/​Tara Tjörva

Mæðgurn­ar voru sam­mála því að það skemmti­leg­asta við dag­inn hafi verið að eyða tíma með fjöl­skyldu og vin­um. „Mér fannst mjög gam­an að eyða tíma sam­an og hitta allt fólkið og borða góðan mat. Mér fannst líka gam­an að fara að fara í hár­greiðslu og græja mig fyr­ir dag­inn,“ seg­ir Guðrún. 

„Ég segi sama og Guðrún, dag­ur­inn var mjög skemmti­leg­ur með fjöl­skyld­unni og vin­un­um. At­höfn­in sjálf var líka í miklu upp­á­haldi hjá mér, hátíðleg og Guðrún stóð sig svo vel í því sem hún tók þátt í,“ seg­ir Guðfinna. 

Guðrúnu fannst skemmtilegast að hitta fjölskyldu sína og vini á …
Guðrúnu fannst skemmti­leg­ast að hitta fjöl­skyldu sína og vini á ferm­ing­ar­dag­inn og borða góðan mat.

Spurðar hvort eitt­hvað stress hafi fylgt deg­in­um segj­ast mæðgurn­ar báðar hafa verið frek­ar ró­leg­ar. „Ég var smá stressuð yfir því að allt yrði ör­ugg­lega til­búið og að verða of sein. Ann­ars var ég ekki svo stressuð,“ seg­ir Guðrún. 

„Ég var ótrú­lega lítið stressuð fyr­ir þessu, það var margt fólk með okk­ur í þessu öllu og það gekk allt svo vel upp,“ seg­ir Guðfinna. 

Ef þið væruð að halda veisl­una í dag, er eitt­hvað sem þið mynduð gera öðru­vísi?

„Ég veit eig­in­lega ekki um neitt sem ég myndi gera öðru­vísi, ég var bara mjög ánægð með þetta,“ seg­ir Guðrún. 

„Það eina sem ég myndi gera öðru­vísi væri að setja ekki sím­ann minn í mynda­bás­inn þannig að ég ætti fleiri tæki­færis­mynd­ir úr veisl­unni. Næst þegar ég fermi reyni ég að hafa sím­ann við hönd­ina og ég hugsa að ég fái jafn­vel ein­hvern úr fjöl­skyld­unni til að sjá um að taka tæki­færis­mynd­ir.

Mynd­irn­ar úr mynda­básn­um eru marg­ar skemmti­leg­ar og mynd­irn­ar frá ljós­mynd­ar­an­um okk­ar frá­bær­ar en mér finnst hinar vanta. Til dæm­is á ég lítið af mynd­um af saln­um til­bún­um, mynd­um af veislu­borðinu, fólki á spjalli, fólki að óska ferm­ing­ar­barn­inu til ham­ingju o.s.frv. Fæst erum við með ljós­mynd­ara í ferm­ing­ar­veislu eins og brúðkaups­veislu en þetta eru mynd­ir sem gam­an væri að eiga – og við erum upp­tek­in sjálf í að spjalla við gesti og halda veislu með því sem því til­heyr­ir,“ seg­ir Guðfinna. 

Guðrún ásamt vinkonum sínum í veislunni.
Guðrún ásamt vin­kon­um sín­um í veisl­unni.

Vildi hafa öðru­vísi ferm­ing­ar­greiðslu

Spurð hver besta ferm­ing­ar­gjöf­in hafi verið nefn­ir Guðrún tvennt. „Ég fékk Mac­Book Air far­tölvu sem ég myndi segja að væri besta gjöf­in og svo fékk ég líka ferðatösk­ur sem eru nú þegar bún­ar að nýt­ast mjög vel,“ seg­ir Guðrún. 

Eins og fram hef­ur komið var ferm­ing­ar­kjóll­inn pantaður á NA-KD og skórn­ir frá JoD­is. Guðrún seg­ist alltaf hafa viljað vera með öðru­vísi hár­greiðslu á ferm­ing­ar­dag­inn og var virki­lega sátt með út­kom­una. „Ég var með sex litl­ar fasta flétt­ur upp frá and­lit­inu og upp á mitt höfuðið. Svo var ég með bylgj­ur í hár­inu neðan við þær,“ seg­ir Guðrún. 

Fermingargreiðsluna gerði Erla Bjarnadóttir á Stjörnuhár á Egilsstöðum.
Ferm­ing­ar­greiðsluna gerði Erla Bjarna­dótt­ir á Stjörnu­hár á Eg­ils­stöðum.

Guðfinna seg­ist í fyrstu hafa verið ör­lítið ef­ins með kjól­inn og greiðsluna en loka­út­kom­an hafi verið glæsi­leg. „Kjóll­inn var pantaður á net­inu og sem bet­ur fer passaði hann og fór henni vel. Hún vildi óvenju­leg­an kjól fyr­ir ferm­ing­ar­kjól og vildi líka öðru­vísi greiðslu en all­ir aðrir. Ég var pínu ef­ins með það fyrst en var svo virki­lega ánægð með allt á deg­in­um sjálf­um og hún fékk mikið hrós frá gest­um fyr­ir hvort tveggja,“ seg­ir Guðfinna. 

Á fermingardaginn var Guðrún með XOXO-eyrnalokka frá Vera Design og …
Á ferm­ing­ar­dag­inn var Guðrún með XOXO-eyrna­lokka frá Vera Design og Kaðals-háls­men frá bylovisa. Ljós­mynd/​Tara Tjörva

Hvað er ómiss­andi á ferm­ing­ar­dag­inn að ykk­ar mati?

„Það er ómiss­andi að hafa ein­hverja skemmt­un eða afþrey­ingu eins og Kahoot-spurn­ing­ar­leik eða eitt­hvað svo­leiðis – eitt­hvað til að gera í veisl­unni. Svo fannst mér nammi­bar­inn okk­ar mjög næs,“ seg­ir Guðrún. 

„Svo ég sé nú bara væm­in þá er bara tvennt sem er virki­lega ómiss­andi á svona degi, ann­ars veg­ar að hafa fjöl­skyldu og vini til að sam­gleðjast með sér. Hvort sem það er stór hóp­ur eða nán­asta fólkið. Hitt sem er ómiss­andi er að hafa ánægt ferm­ing­ar­barn og þá skipt­ir mestu máli að setja sín­ar hug­mynd­ir sem for­eldr­is til hliðar og hlusta á þeirra hug­mynd­ir og skoðanir um það hvernig á að haga deg­in­um,“ seg­ir Guðfinna.

Fermingarmyndirnar voru teknar af Töru Tjörvadóttur við félagsmheimilið á milli …
Ferm­ing­ar­mynd­irn­ar voru tekn­ar af Töru Tjörva­dótt­ur við fé­lags­mheim­ilið á milli kirkju­at­hafn­ar og veislu. Fjöl­skyld­an var ánægð með vel heppnaðar mynd­ir og mynd­vinnslu. Ljós­mynd/​Tara Tjörva
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda