„Að vera ung móðir er alveg áskorun“

Sara Aurora Lúðvíksdóttir var 18 ára gömul þegar hún eignaðist …
Sara Aurora Lúðvíksdóttir var 18 ára gömul þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn, Guðmund Andra Ben Bergþórsson. Ljósmynd/Alexandra Melo

Sara Aur­ora Lúðvíks­dótt­ir var nýorðin 18 ára þegar hún komst að því að hún ætti von á barni með sam­býl­is­manni sín­um Bergþóri Erni Jens­syni. Á þeim tíma var Sara enn í Versló og ekki á dag­skránni að eign­ast barn á næst­unni og því upp­lifðu þau Bergþór mikið sjokk þegar tvær skýr­ar lín­ur birt­ust á þung­un­ar­prófi.

Sjokkið og hræðslan sem fylgdi frétt­un­um fyrst um sinn breytt­ist þó fljótt í mikla til­hlökk­un og gleði, en í dag eiga þau son­inn Guðmund Andra Ben sem er nýorðinn eins árs og kann Sara afar vel við sig í móður­hlut­verk­inu. 

Frá því hún varð ófrísk hef­ur fylgj­enda­hóp­ur Söru á bæði In­sta­gram og TikT­ok stækka ört, en Sara hef­ur verið dug­leg að birta fal­leg­ar mynd­ir og mynd­bönd á sam­fé­lags­miðlum þar sem hún gef­ur fylgj­end­um sín­um inn­sýn í nýja hlut­verkið og því sem fylg­ir að vera ung móðir. 

Bergþór og Sara ásamt syni sínum.
Bergþór og Sara ásamt syni sín­um. Ljós­mynd/​Al­ex­andra Melo

„Auðvitað var ég hrædd“

Sara og Bergþór voru ekki búin að vera lengi sam­an þegar þau komust að því að þau væru að verða for­eldr­ar. „Við kynnt­umst í miðbæ Reykja­vík­ur svona eins og dæmi­gert ís­lenskt par. Hann fékk link á sam­fé­lags­miðlana mína og nokkr­um vik­um seinna fékk ég boð í ís­bíltúr. Síðan þá höf­um við verið sam­an alla daga,“ seg­ir Sara.

Aðspurð seg­ir Sara þau hafa upp­lifað mikið sjokk þegar þau komust að því að hún væri ófrísk. „Við vor­um svo ótrú­lega ung, 18 ára og 21 árs, og búin að vera stutt sam­an, þannig þetta var eng­an veg­inn næsta skref hjá okk­ur. Það var því mikið sjokk fyr­ir okk­ur bæði, en já­kvætt sjokk. Það breyt­ir auðvitað öllu að eiga von á barni. Ég var í Versló og Beggi að vinna, en það kom samt í raun­inni aldrei neitt annað til greina en að eiga barnið,“ seg­ir Sara.

Sara og Bergþór upplifðu bæði sjokk þegar tvær skýrar línur …
Sara og Bergþór upp­lifðu bæði sjokk þegar tvær skýr­ar lín­ur birt­ust á þung­un­ar­prófi. Ljós­mynd/​Al­ex­andra Melo

„Ég mun aldrei gleyma viðbrögðunum þegar ég kom einn morg­un­inn með já­kvætt þung­un­ar­próf inn í svefn­her­bergi. Ég sýndi hon­um tvær lín­ur há­grát­andi og hann tók utan um mig titrandi og sagði: „Ástin mín, þetta verður allt í lagi. Við finn­um út úr þessu“.

Það tók mig smá tíma að átta mig á þessu. Við rædd­um þetta við okk­ar nán­ustu og feng­um strax stuðning frá okk­ar besta fólki sem var mjög dýr­mætt. Við urðum fljótt ótrú­lega spennt fyr­ir þess­ari litlu baun sem var á leiðinni,“ rifjar Sara upp. 

„Þrátt fyr­ir að ég væri 18 ára göm­ul þá fann ég innst inni að þetta væri hlut­verk sem ég treysti mér í og myndi blómstra í, en auðvitað var ég hrædd. Er maður ekki alltaf smá hrædd­ur og kvíðinn við að tak­ast á við eitt­hvað nýtt? Ég held að það sé bara eðli­legt og hollt fyr­ir mann,“ bæt­ir hún við.  

Þrátt fyrir að hafa upplifað hræðslu fann Sara fljótt að …
Þrátt fyr­ir að hafa upp­lifað hræðslu fann Sara fljótt að hún myndi blómstra í nýja hlut­verk­inu.

„Klár­lega það fal­leg­asta og besta sem ég hef upp­lifað“

Aðspurð seg­ir Sara meðgöng­una hafa gengið vel þrátt fyr­ir að hafa upp­lifað hræðslu til að byrja með. „Ég varð rosa­lega slöpp og þreytt fyrstu mánuðina en svo hellt­ist yfir mig ótrú­leg orka og mér leið svo vel. Það var dá­sam­legt að upp­lifa meðgöng­una, horfa á kúl­una stækka, finna spörk­in og finna fyr­ir litla líf­inu vaxa þarna inni. Ég veit að það er ekki sjálfsagt að eign­ast heil­brigt barn,“ seg­ir hún. 

„Meðgang­an er klár­lega það fal­leg­asta og besta sem ég hef upp­lifað. Ég elskaði að vera í þröng­um kjól­um og sýna kúl­una og fannst ég geisla með þessa kúlu mína, enda veit ég ekk­ert fal­legra en ófrísk­ar kon­ur,“ bæt­ir hún við. 

Sara á ljúfar minningar af meðgöngunni og leið heilt yfir …
Sara á ljúf­ar minn­ing­ar af meðgöng­unni og leið heilt yfir vel.

„Þrátt fyr­ir að vera hrædd við hvernig þetta myndi ganga fyr­ir sig ver­andi ung, þá held ég að all­ar kon­ur upp­lifi ákveðna hræðslu við fyrstu meðgöngu og fæðingu og svo hvað sé framund­an sem móðir, hvernig barn maður fái í fangið,“ út­skýr­ir Sara. 

„Það var auðvitað mik­il til­hlökk­un og gleði en all­ar þess­ar til­finn­ing­ar og horm­ón rugla í manni. Þetta er rúss­íbani á köfl­um svo maður þarf að vera dug­leg­ur að hugsa um sig og hlúa vel að sér, bæði and­lega og lík­am­lega og passa upp á sig og litlu baun­ina sem er að vaxa,“ bæt­ir hún við. 

Spurð hvað hafi komið henni mest á óvart á meðgöng­unni seg­ir Sara það vera hve hratt meðgang­an leið og hve heilsu­hraust hún var. „Í raun­inni leið mér svaka­lega vel á meðgöng­unni. Stund­um fannst mér eins og ég hefði ekki nægi­lega mik­inn tíma til að gera allt sem ég þyrfti að gera í hreiður­gerðinni, en eft­ir á að hyggja sé ég að eina sem maður þarf er ást og tími fyr­ir litla krílið,“ seg­ir hún. 

Sara er mikil smekkmanneskja og hefur innréttað barnaherbergið á fallegan …
Sara er mik­il smekk­mann­eskja og hef­ur inn­réttað barna­her­bergið á fal­leg­an máta.

Var í virkri fæðingu í um tvo sól­ar­hringa

Sara seg­ir að þegar að á heild­ina sé litið hafi fæðing­in gengið vel þrátt fyr­ir að hafa tekið lang­an tíma. „Fæðing­in tók mjög lang­an tíma því litli maður­inn snéri upp og horfði til stjarn­anna eða „stjer­nekigger“. Sú staða á hon­um gerði það að verk­um að ég var í virkri fæðingu í um tvo sól­ar­hringa. Það var mjög krefj­andi og gekk mjög nærri mér og kom mér á óvart,“ seg­ir Sara.

„Auðvitað vissi ég að allt get­ur gerst í fæðingu og sjálf kom ég í heim­inn með bráðakeis­ara. Ég hugsaði samt ekki mikið um hvað gæti farið úr­skeiðis held­ur reyndi ég að hugsa frek­ar að ég væri ung og hraust og að allt hafi verið já­kvætt í mæðraskoðunum,“ bæt­ir hún við. 

Sara fór inn í fæðinguna með jákvætt hugarfar.
Sara fór inn í fæðing­una með já­kvætt hug­ar­far.

Þann 14. fe­brú­ar 2023 missti Sara vatnið geng­in 40 vik­ur og þrjá daga á leið, en þá var hún búin að vera með óreglu­lega verki frá því kvöld­inu áður. „Fæðing­in byrjaði á ró­legu nót­un­um. Ég vildi vera sem lengst heima þar sem mér líður best og andaði mig bara í gegn­um verk­inu. Eft­ir há­degi 15. fe­brú­ar fór­um við svo upp á deild aft­ur og þá var ég kom­in með fimm í út­víkk­un og fékk her­bergi,“ rifjar hún upp.

„Ég vildi bíða sem lengst með að fá deyf­ingu en notaði glaðloftið, loft­ból­ur og fór í baðið. Bergþór og mamma voru með mér svo þetta leið allt mjög hratt fyrst um sinn, með öll­um vakta­skipt­un­um af frá­bær­um ljós­mæðrum sem vildu allt fyr­ir okk­ur gera,“ bæt­ir hún við. 

Móðir Söru tók dýrmætar myndir af fæðingunni.
Móðir Söru tók dýr­mæt­ar mynd­ir af fæðing­unni.

„Þegar fór að líða á þriðja dag síðan verk­irn­ir byrjuðu og ég hafði verið með níu í út­víkk­un í yfir átta klukku­stund­ir þá bað ég mun mænu­deyf­ingu og hann kom fljót­lega eft­ir það án frek­ari inn­gripa. Þetta var magnaðasta augna­blik sem ég hef upp­lifað þegar hann mætti öskr­andi með nafla­streng­inn utan um háls­inn, all­ur í blóði, pínu­lít­ill en svo ótrú­lega full­kom­inn. Mamma tók dýr­mæt­ar mynd­ir sem ég er svo þakk­lát fyr­ir í dag,“ seg­ir Sara.

Guðmundur kom í heiminn 16. febrúar 2023.
Guðmund­ur kom í heim­inn 16. fe­brú­ar 2023.

Hvernig breytt­ist lífið eft­ir að þú varðst mamma?

„Vá, það breytt­ist svo mikið en samt finnst mér eins og hann hafi alltaf verið hérna. Ég fór úr því að vera stelpu­skott í það að vera stelpu­kona sem átti allt í einu kær­asta, íbúð og barn og var far­in að elda mat og borga reikn­inga.

Sam­bandið okk­ar breytt­ist líka og við gleymd­um svo­lítið að huga að okk­ur, enda ekki leng­ur tími til að hoppa á deit, í rækt­ina eða í ís­bíltúr hvenær sem er. Hægt og ró­lega lær­ir maður svo inn á þetta og að búa til tíma fyr­ir okk­ur, áhuga­mál, vini og fjöl­skyldu. Maður lær­ir að for­gangsraða öðru­vísi og litla fjöl­skyld­an okk­ar er alltaf núm­er eitt, tvö og þrjú.

Við erum ótrú­lega hepp­in að mamma mín hef­ur alltaf verið til taks að passa og aðstoða enda dýrk­ar hún ömmu­hlut­verkið, það er aðallega bara ég sem hef átt erfitt með að fara frá hon­um.“

Lífið breyttist hratt hjá Söru, en á svipstundu var hún …
Lífið breytt­ist hratt hjá Söru, en á svip­stundu var hún kom­in með kær­asta, íbúð, barn og far­in að borga reikn­inga. Ljós­mynd/​Al­ex­andra Melo

Hvað kom þér mest á óvart við móður­hlut­verkið?

„Það sem kom mér mest á óvart í móður­hlut­verk­inu er hversu mikið er hægt að elska aðra mann­eskju skil­yrðis­laust og á hverj­um degi held­ur það áfram að koma mér á óvart hversu mikið ég elska þenn­an litla mola sem treyst­ir á mig og okk­ur fyr­ir allri sinni til­veru. Ástin bara vex. Það hef­ur einnig komið á óvart hversu mik­il mamma ég er í raun og veru, hvað þetta ligg­ur vel fyr­ir mér að vera mamma hans Guðmund­ar og hversu miklu maður er til­bú­inn að fórna fyr­ir börn­in sín.

Að vera ung móðir er al­veg áskor­un og maður þarf að passa að missa ekki af lest­inni eins og t.d. með vini því vin­kon­ur mín­ar eru ekki á sama stað, en ég hef líka verið dug­leg að taka þátt í mömmu­hitt­ing­um og tengj­ast öðrum mömm­um með börn á sama aldri og hef eign­ast æðis­leg­ar vin­kon­ur sem eru á sama stað og ég með lít­il börn og það er bara bón­us.“

Guðmundur á eins árs afmæli sínu.
Guðmund­ur á eins árs af­mæli sínu.

„Í raun kem­ur mér á óvart hversu fjöl­breytt, krefj­andi og skemmti­legt móður­hlut­verkið er því það var svo mikið af fólki búið að vera nei­kvætt, í raun­inni bara reyna að draga úr manni. Mér finnst bara ynd­is­legt að vera mamma hans og hann gef­ur mér svo mikið, á hverj­um degi læri ég eitt­hvað nýtt. Auðvitað koma al­veg dag­ar sem það reyn­ir á en það er fljótt að gleym­ast í gleðinni.“

Sara segir erfiðu stundirnar fljótt gleymast í gleðinni sem fylgir …
Sara seg­ir erfiðu stund­irn­ar fljótt gleym­ast í gleðinni sem fylg­ir móður­hlut­verk­inu. Ljós­mynd/​Al­ex­andra Melo

Mik­il­vægt að sýna sjálf­um sér mildi

Í upp­eld­inu seg­ist Sara fyrst og fremst leggja áherslu á að Guðmund­ur fái ást­ríkt upp­eldi og að hann finni það hversu heitt þau Bergþór elski hann og dýrki. „Ég er ennþá að reyna að átta mig á upp­eld­inu og hvað er best. Að ala hann upp er eitt mik­il­væg­asta og mest krefj­andi verk­efni sem við for­eldr­arn­ir höf­um tek­ist á við því auðvitað vilj­um við að hann verði góð og ham­ingju­söm mann­eskja sem stend­ur með sjálf­um sér,“ seg­ir hún. 

„Ég reyni líka að leyfa hon­um að prufa allt sjálf­ur og leiðbeina hon­um svo hann átti sig á hlut­un­um. Ég vil að hann læri að vera sjálf­stæður og að hann viti að hann geti allt. Ég er hrif­in af því að lesa fyr­ir börn og tala við þau og trúi að þau læri mikið á því. Við reyn­um að leiðbeina hon­um og hvetja til góðrar hegðunar og auðvitað veit maður að börn læra það sem fyr­ir þeim er haft, svo ætli það sé ekki best að vera sterk og góð fyr­ir­mynd fyr­ir börn­in sín,“ bæt­ir hún við. 

Sara og Bergþór leggja áherslu á að sonur þeirra fái …
Sara og Bergþór leggja áherslu á að son­ur þeirra fái ást­ríkt upp­eldi. Ljós­mynd/​Al­ex­andra Melo

Ertu með ein­hver ráð fyr­ir verðandi mæður?

„Við verðandi mæður vil ég segja að muna að taka einn dag í einu, það eru all­ir að gera sitt besta. Auðvitað er hver meðganga og fæðing ólík milli kvenna og all­ir verða að fá að upp­lifa móður­hlut­verkið á sinn hátt.

Fyr­ir mér hef­ur þetta verið mögnuð upp­lif­un og breyt­ing á líf­inu, en móður­hlut­verkið er besta hlut­verk í heimi. Auðvitað koma dag­ar þar sem þetta er yfirþyrm­andi, þetta nýja hlut­verk, og þá þarf að muna að sýna sér mildi og lofa sér að hvílast, en um­fram allt að gera ekki of mikl­ar kröf­ur til sín. Við erum öll bara að læra á þetta nýja hlut­verk.

Þessi litlu kríli eru svo fljót að stækka svo ég reyni bara að njóta hvers augna­bliks og skapa góðar minn­ing­ar. Já, og taka hell­ing af mynd­um og mynd­bönd­um.“

Sara mælir með því að foreldrar taki nóg af myndum …
Sara mæl­ir með því að for­eldr­ar taki nóg af mynd­um og mynd­bönd­um af börn­un­um sín­um.

Hvað er framund­an hjá ykk­ur?

„Það sem er framund­an hjá okk­ur er bara að halda áfram að njóta þess að fylgj­ast með Guðmundi Andra Ben vaxa, kenna hon­um og læra af hon­um. Það er líka í plön­un­um að ferðast meira og skoða heim­inn sem fjöl­skylda, og svo ætla ég að halda áfram að byggja upp litla fyr­ir­tækið mitt SMUK SCANDI­NAVI­AN – og auðvitað halda áfram að vinna á sam­fé­lags­miðlum að gera efni fyr­ir fyr­ir­tæki.“

View this post on In­sta­gram

A post shared by Sara Aur­ora (@sara­aur­oralud)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda