Elín Metta Jensen, knattspyrnukona og læknanemi, og Sigurður Tómasson, verkefnastjóri í framtaksfjárfestingum hjá VEX, eiga von á barni.
Parið birti mynd af sér á samfélagsmiðlum og sagði í færslu: „Þrjú í haust“.
Í byrjun árs var greint frá því að Elín Metta og Sigurður væru orðin nýtt par.
https://www.mbl.is/smartland/stars/2024/01/15/elin_metta_og_sigurdur_fundu_astina/
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!