Doctor Victor og Dagbjört eignuðust tvíbura

„Tvöföld vandræði!“ skrifaði Victor Guðmundsson við fyrstu myndina sem hann …
„Tvöföld vandræði!“ skrifaði Victor Guðmundsson við fyrstu myndina sem hann birti af tvíburedrengjunum. Skjáskot/Instagram

Victor Guðmunds­son, lækn­ir og tón­list­armaður, og unn­usta hans, Dag­björt Gudjohnsen Guðbrands­dótt­ir bráðalækn­ir, eignuðust á dög­un­um tví­bura­drengi. Fyr­ir eiga þau son­inn Frosta sem er tveggja ára. 

Victor deildi gleðifregn­un­um í færslu á In­sta­gram-reikn­ingi sín­um, en með færsl­unni birti hann mynd af sér með tví­bura­dreng­ina tvo í barna­bíl­stól­um. 

„Tvö­föld vand­ræði! #tví­bur­ar Stærsta út­gáf­an mín hingað til ...,“ skrifaði hann við mynd­ina. 

Slær í gegn í Kína

Victor hef­ur verið að gera það gott í tón­list­ar­heim­in­um, meðal ann­ars í Kína, og sagði frá því ný­verið í viðtali við blaðamann ferðavefs mbl.is. 

„Það sem ég hef heyrt er að þau hafa mjög gam­an af skandi­nav­íska stíln­um í tón­list­inni minni og sér­stak­lega hvernig ég blanda kín­versk­um „element­um“ við mína tónlist. Fyrsta verk­efnið sem ég gerði var ein­mitt þema­lag fyr­ir Vetr­arólymp­íu­leik­ana í Pek­ing 2022 og þá vann ég með kín­versk­um tón­list­ar­mönn­um og blandaði okk­ar stíl­um sam­an.

Seinna verk­efnið sem ég tók þátt í var að gera þema­lag fyr­ir geim­ferðaáætl­un Kína. Þar vann ég tónlist með frá­bærri kín­verskri söng­konu sem heit­ir Ner­issa Wang og ein­um þekkt­asta guzheng hljóðfæra­leik­ara Kína, henni Lucy Luan, en guzheng er kín­verskt hljóðfæri með sér­stak­an hljóm,“ sagði hann í viðtal­inu.

Fjöl­skyldu­vef­ur mbl.is ósk­ar þeim inni­lega til ham­ingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda