10 matvæli sem hjálpa börnum með hægðatregðu

Er barnið þitt að borða nóg af trefjum?
Er barnið þitt að borða nóg af trefjum? Ljósmynd/Pexels/Cottonbro Studio

Því fylgja ýms­ir heilsu­fars­leg­ir ávinn­ing­ar fyr­ir alla ald­urs­hópa að neyta nóg af trefj­um, en börn þurfa ekki síður á trefj­um að halda. Hægðat­regða er al­gengt vanda­mál meðal barna, en þar geta trefjarn­ar oft hjálpað til. 

Ef mataræði barns inni­held­ur of lítið af trefj­um er mik­il­vægt að auka magnið hægt og ró­lega og í litl­um skömmt­um. Það er vegna þess að of mikið af trefj­um í einu get­ur valdið uppþembu hjá börn­um. 

Ný­verið birt­ist grein á vef Par­ents þar sem farið var yfir tíu trefja­rík mat­væli sem gætu hjálpað börn­um með hægðat­regðu. 

Hind­ber

Hind­ber eru með trefja­rík­ustu ávöxt­un­um og geta verið notuð fersk eða fros­in. Í ein­um bolla af hind­berj­um eru átta grömm af trefj­um. 

Ljós­mynd/​Unsplash/​Meg Jen­son

Kart­öfl­ur

Það get­ur verið sniðugt að skipta út frönsk­um kart­öfl­um fyr­ir bakaðar, soðnar eða gufu­soðnar kart­öfl­ur til að bæta meiri trefj­um við máltíðina. Ef þú vilt svo bæta enn meiri trefj­um við þá skaltu halda hýðinu á. Í einni miðlungs­stórri kart­öflu eru um fjög­ur grömm af trefj­um. 

Ljós­mynd/​Pex­els/​Al­esia Kozik

Eda­mame-baun­ir

Í 1/​4 bolla af Eda­mame-baun­um eru þrjú grömm af trefj­um. Þar að auki eru baun­irn­ar skemmti­legt snarl fyr­ir börn­in.

Ljós­mynd/​Pex­els/​Val­er­ia Bolt­neva

Haframjöl

Haframjöl er góður trefja­gjafi sem auðvelt er að nota í bakst­ur eða til að út­búa hafra­graut – toppaðu hafra­graut­inn svo með niður­skorn­um ávöxt­um fyr­ir meiri trefjar, en í 1/​2 bolla af höfr­um eru fjög­ur grömm af trefj­um. 

Ljós­mynd/​Pex­els/​Pol­ina Tanki­levitch

Heil­hveitip­asta

Í ein­um skammti af heil­hveitip­asta eru heil sex grömm af trefj­um. Ef börn eru vön því að fá hvítt pasta get­ur verið sniðugt að blanda sam­an hvítu- og heil­hveitip­asta til að venja þau á bragðið og kalla það „sebra pasta“.

Ljós­mynd/​Unsplash/​Monika Gra­b­kowska

Avóka­dó

Í 1/​2 bolla af maukuðu avóka­dó eru um þrjú grömm af trefj­um auk hollr­ar fitu. Það er hægt að út­búa ljúf­fengt guaca­mole með því að stappa sam­an avóka­dó, lime-safa, salti og bera það fram með snakki, eða smyrja það ofan á heil­korna brauðsneið.

Ljós­mynd/​Pex­els/​Cott­on­bro Studio

Popp­korn

Popp­korn get­ur verið frá­bært fyr­ir börn til að snarla á og inni­held­ur trefjar. At­hugið þó að köfn­un­ar­hætta er af popp­korni fyr­ir mjög ung börn. 

Ljós­mynd/​Unsplash/​Edu­ar­do Ca­sajús Gorost­iaga

Per­ur

Í miðlungs­stórri peru með hýði eru um það bill fimm grömm af trefj­um sem er fjórðung­ur af því sem börn þurfa á hverj­um degi.

Ljós­mynd/​Pex­els/​Marta Dze­dys­h­ko

Granata­epli

Granata­epli er bæði hægt að borða eitt og sér eða toppa jóg­úrt eða hafra­graut með því. Í 1/​2 bolla af granata­epl­um eru þrjú grömm af trefj­um. 

Ljós­mynd/​Unsplash/​Oli­vie Strauss

Hör­fræ

Hör­fræ inni­halda bæði holla fitu og um þrjú grömm af trefj­um í einni mat­skeið. Þú get­ur keypt fræðin möluð eða malað þau sjálf/​ur og bætt út í möff­ins, vöfflu­deig eða „smoot­hie“.

Ljós­mynd/​Pex­els/​Eva Bronz­ini
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda