Birti myndir af börnunum rétt fyrir handtökuna

Jessica Biel birti myndir af Justin Timberlake í föðurhlutverkinu rétt …
Jessica Biel birti myndir af Justin Timberlake í föðurhlutverkinu rétt áður en hann var handtekinn. Samsett mynd

Rétt áður en það bár­ust fregn­ir af hand­töku Just­in Timberla­kes birti eig­in­kona hans, leik­kon­an Jessica Biel, mynd­ir af börn­um þeirra á In­sta­gram. Hjón­in birta sjald­an mynd­ir af börn­um sín­um á sam­fé­lags­miðlum. 

Biel og Timberla­ke eiga syn­ina Silas sem er níu ára og Phineas sem er þriggja ára. Þrátt fyr­ir að birta mynd­irn­ar af þeim passa þau sig að birta ekki mynd­ir af and­lit­um þeirra. 

„Þú ert svo margt í hug­um margra. En þú ert klett­ur­inn okk­ar. Klett­ur­inn sem við klifr­um á, höll­um okk­ur að. Klett­ur­inn sem skýl­ir okk­ur frá sól­inni,“ skrifaði Biel meðal ann­ars og sagðist hún von­ast til þess að þau jarðtengi hann. 

Hef­ur verið bent á að færsl­an hafi ekki elst vel þar sem aðeins stuttu eft­ir að Biel birti hana var Timberla­ke hand­tek­inn fyr­ir að keyra und­ir áhrif­um. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Jessica Biel (@jessica­biel)

Jessica Biel og Justin Timberlake eiga tvo syni.
Jessica Biel og Just­in Timberla­ke eiga tvo syni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda