Komst að því að hún ætti 26 systkini

Jennifer Hudson.
Jennifer Hudson. AFP

Söng­kon­an Jenni­fer Hudson opn­ar sig í fyrsta skipti op­in­ber­lega um það að faðir henn­ar á 27 börn. Hudson komst að þess­ari ótrú­legu upp­götv­un þegar hún var 16 ára, en hún er yngst allra systkin­anna og ólst upp með tveim­ur þeirra: Ja­son og Ju­liu.

Það væri kannski áfall fyr­ir ein­hverja að kom­ast að því að 26 ein­stak­ling­ar úti í sam­fé­lag­inu væru skyld­ir þér en Hudson upp­lifði það ekki þannig. Strax fór hún að láta sig dreyma um að sam­eina fjöl­skyld­una einn dag­inn. Að all­ir gætu fagnað þakk­ar­gjörðar­hátíðinni sam­an eða varið jól­un­um sam­an. 

Söng­kon­an seg­ist aðeins hafa hitt fimm af systkin­um sín­um, sem hún ólst ekki upp með, en föður­fjöl­skylda henn­ar hef­ur lagt mikið á sig til að finna systkini henn­ar og láta verða að fjöl­skyldusam­ein­ing­unni.

Það var svo í jarðarför föðurömmu henn­ar sem ætt­ingj­ar komust á sporið. Þar spurðist það út að yngsta barna­barnið kynni að syngja. 

Hudson er staðráðin í að hafa upp á fleiri systkin­um sín­um og seg­ist hlakka til að kynn­ast þeim. 

Söng­kon­an er móðir hins 14 ára Dav­id Daniel Ot­unga. Dreng­inn eignaðist hún með fyrr­ver­andi kær­asta sín­um, glím­u­stjörn­unni Dav­id Ot­unga. Hún seg­ir að það sé henn­ar hjart­ans mál að son­ur henn­ar al­ist upp í kring­um fjöl­skyldu henn­ar og að það hafi verið ástæða þess að þau fluttu til heima­slóða Hus­don í Chicago um tíma. Núna búa þau í Los Ang­eles en eru dug­leg að heim­sækja Chicago þar sem þau rækta sam­bandið við fjöl­skyld­una. 

Page six

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda