Hvaða matvæli á að forðast á meðgöngu?

Ekki er mælt með því að ófrískar konur neyti hrárra …
Ekki er mælt með því að ófrískar konur neyti hrárra eggja sem má til dæmis finna í hráu kökudeigi. Samsett mynd

Á meðgöngu er mik­il­vægt að huga að góðri nær­ingu, en hún stuðlar að vexti og þroska barns­ins í móðurkviði og legg­ur grunn­inn að heil­brigði barns­ins síðar á æv­inni. 

Sam­kvæmt ráðlegg­ing­um á vef Heilsu­veru þurfa barns­haf­andi kon­ur ekki sér­fæði held­ur á venju­leg­ur mat­ur, fjöl­breytt­ur og holl­ur sam­kvæmt ráðlegg­ing­um, að full­nægja bæði þörf­um barns­ins og móður­inn­ar. 

Það eru þó fá­ein­ar und­an­tekn­ing­ar á þessu, en mælt er með því að barns­haf­andi kon­ur forðist ákveðin mat­væli á meðgöng­unni.

Mat­væli sem barns­haf­andi kon­um er ráðlagt að neyta ekki á meðgöngu:

  • Hrár fisk­ur, t.d. graf­inn fisk­ur, kald­reykt­ur fisk­ur, sus­hi með fiski, súrsaður hval­ur og há­karl. 
  • Þorskalif­ur
  • Sverðfisk­ur
  • Stór­lúða
  • Hrá­ar bauna­spír­ur
  • Óger­il­sneydd mjólk og ost­ar eða aðrar mjólkuraf­urðir úr óger­il­sneyddri mjólk
  • Hrátt kjöt
  • Hrá egg
  • Fýll og fýl­segg

Fæðuteg­und­ir sem barns­haf­andi kon­um er ráðlagt að neyta í hófi og ekki oft­ar en einu sinni í viku:

  • Túna­fisksteik
  • Búri
  • Niðursoðinn tún­fisk­ur
  • Svart­ful­segg
  • Hrefnu­kjöt
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda