Hélt sig heima í 40 daga

Kourtney Kardashian og Travis Barker eignuðust barn í fyrra.
Kourtney Kardashian og Travis Barker eignuðust barn í fyrra. AFP/ANGELA WEISS

Raun­veru­leika­stjarn­an Kourt­ney Kar­dashi­an eignaðist sitt fjórða barn í fyrra. Hún tók þá ákvörðun að fara ekki út úr húsi 40 dög­um eft­ir fæðing­una. 

Stjarn­an greindi frá ákvörðun sinni í nýj­um þætti af The Kar­dashi­ans. „Ég ætla að vera heima í 40 daga,“ sagði Kourt­ney Kar­dashi­an systr­um sín­um Khloé Kar­dashi­an og Kim Kar­dashi­an. „Ætlar þú að vera heima í 40 daga og 40 næt­ur?“ spurði þá Khloé Kar­dashi­an syst­ur sína hissa að því fram kem­ur á vef People. 

Kar­dashi­an tók ákvörðun­ina til þess að heila lík­ama sinn eft­ir meðgöngu og fæðingu. „Í mörg­um mis­mun­andi menn­ing­ar­heim­um fara kon­urn­ar ekki út í 40 daga,“ sagði Kourt­ney Kar­dashi­an og upp­lýsti hún syst­ur sín­ar að kon­ur gerðu þetta til þess að heila lík­amann.

Sagðist hún jafn­framt vera hrif­in af upp­eldi þar sem mik­il nær­vera er á milli for­eldra og barna. „Ég fer ekki frá hon­um. Ég elska að vera heima núna, tím­inn minn fer í að hugsa um barnið og mynda tengsl við hann,“ sagði Kourt­ney Kar­dashi­an. 

Kourtney Kardashian og Travis Barker eiga son saman.
Kourt­ney Kar­dashi­an og Tra­vis Bar­ker eiga son sam­an. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda