Svona er morgunrútína 11 barna móður

Móðirin Alicia Dougherty og barnahópurinn hennar.
Móðirin Alicia Dougherty og barnahópurinn hennar. Samsett mynd

Ell­efu barna móðirin, Alicia Doug­herty, kom mörg­um á óvart þegar hún deildi morg­un­rútínu sinni en það get­ur verið afar strembið að koma 11 börn­um í skól­ann.

Dag­ur­inn hjá Doug­herty byrj­ar klukk­an fjög­ur um morg­un­inn en þá byrj­ar hún á því að græja eitt og annað áður en krakka­hóp­ur­inn vakn­ar eins og nestið, föt­in og lyf­in.

Doug­herty út­skýr­ir að næst set­ur hún nestið og vatns­brúsa með klaka í 11 skóla­tösk­ur sem hún raðar í ald­urs­röð ásamt skóm hvers barns í for­stof­una.

„Ég passa sér­stak­lega að all­ar skóla­tösk­urn­ar séu með nesti, há­deg­is­mat, vatns­brúsa, heima­vinn­una og skóla­bæk­urn­ar,“ seg­ir Doug­herty.

Að lok­um bursta öll börn­in sam­an tenn­urn­ar og taka þau lyf eða víta­mín sem þau þurfa áður en móðir þeirra kyss­ir þau bless og krakk­arn­ir fara af stað í skól­ann.

Doug­herty vakti fyrst mikla at­hygli á sam­fé­lags­miðlin­um TikT­ok þegar hún sýndi fylgj­end­um sín­um hvernig hún eld­ar kvöld­mat fyr­ir börn­in sín 11.

Fólk hef­ur verið í sjokki út af því gríðarlega magni af mat sem hún þarf að kaupa inn og elda en ekki síður því mikla skipu­lagi sem fylg­ir því að koma börn­un­um út úr húsi á hverj­um degi.

„Mamma árs­ins,“ sagði einn fylgj­andi henn­ar.

„Þú ert hetj­an mín, ég á í basli bara með tvö börn!,“ sagði ann­ar. 

The Sun 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda