Alræmdur sæðisgjafi neitar sök

Jonathan Jacob Meijer hefur verið sæðisgjafi í 17 ár.
Jonathan Jacob Meijer hefur verið sæðisgjafi í 17 ár. Skjáskot/YouTube

Jon­ath­an Jacob Meijer, hol­lensk­ur sæðis­gjafi, svar­ar fyr­ir sig í kjöl­far nýju heim­ild­arþátt­anna The Man With 1.000 Kids sem kom út á streym­isveit­unni Net­flix. Þætt­irn­ir fjalla um fólk sem hef­ur eign­ast börn með aðstoð sæðis­gjafa Meijer. Marg­ir segj­ast hafa verið svikn­ir og upp­lifa reiði eft­ir að upp komst um fjölda líf­fræðilegra hálf­systkina í Bretlandi og ann­ars staðar í heim­in­um. 

Meijer sem hef­ur verið sæðis­gjafi í 17 ár neit­ar því að hafa átt þátt í að um 1.000 börn fædd­ust með hjálp hans og seg­ir að sam­kvæmt sín­um töl­um séu þau 550. Í mörg­um til­vik­um hafði hann sam­band við fjöl­skyld­urn­ar sjálf­ur í stað þess að veita gjaf­irn­ar í gegn­um sér­hæfðar einka­stof­ur. 

Hann seg­ir í sam­tali við breska rík­is­út­varpið BBC að heim­ild­arþætt­irn­ir séu vill­andi því þeir segja aðeins sögu fjöl­skyldn­anna sem eru óánægðar í staðinn fyr­ir for­eldr­anna sem eru hon­um þakk­lát­ir. 

Meijer neitaði að koma í viðtal fyr­ir Net­flix-heim­ild­arþætt­ina.  

Na­talie Hill, fram­leiðandi þátt­anna, seg­ir það al­ger­lega rangt að meiri­hluti fjöl­skyldn­anna sé ánægður og að 50 fjöl­skyld­ur hafa nú þegar farið með málið fyr­ir dóm þar og óskað eft­ir að hann verði stoppaður. 

For­eldr­ar barn­anna hafa mikl­ar áhyggj­ur af því hversu mörg önn­ur börn deila að hluta til sama erfðaefni í sam­fé­lag­inu. 

„Stærstu áhyggj­urn­ar eru að þessi börn munu hitt­ast í framtíðinni, verða ást­fang­in vegna þess að þau sjá kunn­ug­lega takta hvort hjá öðru og þau eiga ekki eft­ir að vera meðvituð um að þau eru frá sama sæðis­gjaf­an­um,“ seg­ir Hill.

Hill bæt­ir við að Meijer hafi sagt fjöl­skyld­un­um að hann hafi verið þekkt­ur sæðis­gjafi en hann hafi aldrei gefið það skýrt fram hversu mörg börn hafa komið í heim­inn með aðstoð sæðis­gjafa hans.

Hol­lensk yf­ir­völd bönnuðu Meijer að gefa sæði þar í landi árið 2017 eft­ir að upp komst að 102 börn höfðu fæðst með hans hjálp en sæðis­gjaf­irn­ar voru dreifðar um 11 sæðis­banka í Hollandi. Hann hélt þó áfram að gefa sæði í öðrum lönd­um þar til árið 2023 þegar kona tapaði í máli gegn hon­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda