„Maður upplifir alls konar tilfinningar“

Harpa Lind á tvö ung börn.
Harpa Lind á tvö ung börn. Ljósmynd/Aðsend

Sam­fé­lags­miðlastjarn­an Harpa Lind Hjálm­ars­dótt­ir er fjöl­skyldu­kona fram í fing­ur­góma og nýt­ur sín best í faðmi fjöl­skyld­unn­ar. Hún á tvö ung börn með eig­in­manni sín­um, Sigþóri Gunn­ari Jóns­syni, sem hún kynnt­ist á fyrsta ári í Verk­mennta­skól­an­um á Ak­ur­eyri. 

Harpa Lind, sem byrjaði ný­verið með hlaðvarpsþátt­inn Sirp­an, ritað með „i“ í stað „y“, ásamt eig­in­manni sín­um, varð móðir í fyrsta sinn 21 árs göm­ul og eignaðist sitt annað barn tveim­ur árum síðar. 

Hvernig leið þér þegar þú komst að því að þú vær­ir ófrísk?

„Mér leið vel en ég viður­kenni al­veg að hafa verið dá­lítið hrædd, sér­stak­lega í fyrsta skiptið. Fyrsta ólétt­an var ekki plönuð en ég var búin að tala um að vilja eign­ast barn árið 2020 enda epískt ár­tal. Ég var sett í janú­ar 2020 en frumb­urður­inn dreif sig í heim­inn í árs­lok 2019.

Næsta barn var planað en ólétt­an kom okk­ur hjón­um á óvart þar sem við misst­um fóst­ur stuttu áður og átt­um því ekki von á verða ófrísk þetta fljótt á eft­ir.“

Sigþór og Harpa Lind ásamt syni sínum.
Sigþór og Harpa Lind ásamt syni sín­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig gengu meðgöng­urn­ar? 

Ég get ekki kvartað yfir neinu. Báðar meðgöng­urn­ar gengu mjög vel. Í fyrra skiptið upp­lifði ég ör­litla verki og eymli í grind­ar­botni þegar og ef ég reyndi of mikið á mig. Í seinni skiptið fann ég fyr­ir vott af meðgönguógleði.“

Hvað var erfiðast yfir þessa níu mánuði?

„Biðin og að geta ekki æft eins og ég er vön. Ég er menntaður einkaþjálf­ari og þurfti að aðlaga æf­ing­arn­ar að ólétt­unni.“

Fannst þér meðgöngu­tíma­bilið líða hratt?

„Já og nei. Mér fannst tím­inn standa í stað und­ir lok­in, sér­stak­lega á seinni meðgöng­unni.“

Hvernig gengu fæðing­arn­ar?

„Báðar fæðing­arn­ar gengu vel. Í fyrra skiptið gekk allt eins og í sögu. Ég fékk mænu­deyf­ingu og var verkjalaus þar til ég hóf að rembast. Fæðing­in tók um það bil 45 mín­út­ur. Seinni fæðing­in gekk mun hraðar fyr­ir sig og var einnig sárs­auka­fyllri. Ég var með harðar og örar hríðar.“

Hvernig stóð mak­inn þinn sig á hliðarlín­unni?

„Mjög vel. Í fyrra skiptið var ég svo hepp­in að hafa mömmu mína og tengda­mömmu hjá mér en í seinna skiptið var Sigþór einn á hliðarlín­unni og stóð sig eins og hetja. Hann gerði allt hvað hann gat til að hjálpa mér.“

Hjónin eru afar hamingjusöm.
Hjón­in eru afar ham­ingju­söm. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig leið þér að sjá barnið þitt í fyrsta sinn?

„Til­finn­ing­in er ólýs­an­leg og ógleym­an­leg. Maður upp­lif­ir alls kon­ar til­finn­ing­ar, fer all­an til­finn­ingaskalann.“

Hvernig breytt­ist lífið eft­ir að þú varðst móðir?

„Lífið breytt­ist á alla vegu. Ég varð ábyrgðarfyllri, heimakærri og þroskaðist hratt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda