Barnapössun í fyrsta skipti frá upphafi í ólympíuþorpinu

Allyson Felix er sigursælasta hlaupakona heims frá upphafi.
Allyson Felix er sigursælasta hlaupakona heims frá upphafi. AFP/Jewel Samad

Ein far­sæl­asta frjálsíþrótta­kona heims frá upp­hafi, Allyson Fel­ix, mun opna fyrstu barnapöss­un­ina frá upp­hafi í ólymp­íuþorp­inu á Ólymp­íu­leik­un­um í Par­ís í sum­ar.

Fel­ix er sjálf tveggja barna móðir, en hún keppti á sín­um fimmtu Ólymp­íu­leik­um árið 2021 í Tókýó þegar fyrsta barn henn­ar var aðeins tveggja ára. Það reynd­ist henni erfitt að hugsa um barnið á sama tíma og keppn­in fór fram en hún var hún und­ir mik­illi pressu.  Ólymp­íuþorpið var þá langt frá því að vera barn­vænt. 

Fel­ix lagði hlaupa­skóna á hill­una árið 2022 og ætl­ar nú að nýta reynslu sína til að bæta upp­lif­un íþrótta­kvenna sem keppa á leik­un­um og eru með ung börn. Hún mun opna svæði í hjarta ólymp­íuþorps­ins sem verður ein­ung­is til­einkað barnapöss­un en einnig verður boðið upp á leik­svæði þar sem mæður geta varið tíma með börn­un­um og gleymt keppn­ispress­unni um stund. 

Hún seg­ir að þetta séu sterk skila­boð til kvenna sem sýni þeim að þær geta valið bæði móður­hlut­verkið og keppt á stærsta íþrótta­vett­vangi heims án þess að vera í ójafn­vægi. 

Nýtt hlut­verk

Fel­ix mun mæta á leik­ana ásamt fjöl­skyldu sinni til að njóta íþrótta­veisl­unn­ar í en þó í öðru ljósi en áður. Hún seg­ist finna fyr­ir blendn­um til­finn­ing­um við und­ir­bún­ing komu sinn­ar á fyrstu Ólymp­íu­leik­ana í tvo ára­tugi þar sem hún er ekki á meðal kepp­anda. 

„Ég finn fyr­ir smá­veg­is missi og sorg en ég er líka spennt fyr­ir þess­um nýja kafla,“ seg­ir Fel­ix. 

CBS News

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda