Börn á jafnvægishjólum læra mun fyrr á reiðhjól

Nýjustu rannsókir mæla með að börn niður í 9 mánaða …
Nýjustu rannsókir mæla með að börn niður í 9 mánaða fái að spreyta sig á jafnvæfishjóli. Ljósmynd/Hiboy/Unsplash

Cristiana Mercê, pró­fess­or í íþrótta­fræði við Santa­rém Polytechnic-há­skól­ann í Portúgal seg­ir að börn sem byrji að nota jafn­væg­is­hjól frá níu til átján mánaða aldri séu fljót­ari að læra á reiðhjól, eða allt að tveim­ur árum, en jafn­aldr­ar þeirra sem nota hjálp­ar­dekk. 

Annie Pezalla, pró­fess­or við Maca­lester-há­skóla í Banda­ríkj­un­um seg­ir að á þess­um tíma þroska­skeiðsins eigi sér stað mikl­ar fram­far­ir í jafn­væg­is­skin­inu þar sem börn eru að læra að ganga, grípa í hluti og verða al­mennt meðvitaðri um um­hverfið sitt. Þegar þeim áföng­um hef­ur verið náð er til­valið að leyfa þeim að prófa jafn­væg­is­hjól. Hún bæt­ir því þó við að fyrsta til­raun­in á hjól­inu ætti að fara fram í ör­uggu um­hverfi, t.d. á grasi eða á mottu, ef börn­in skyldu detta. 

Pezalla seg­ir að hjálp­ar­dekk séu að detta úr tísku þar sem þau bæti hreyfiþroska barna lítið. Al­gengt er ung­ir hjólagarp­ar eigi erfitt með að læra hvernig eigi að ná jafn­vægi og sam­hæf­ingu á reiðhjóli þegar hjálp­ar­dekk­in eru tek­in af.

Auk þess eru hjól með hjálp­ar­dekkj­um yf­ir­leitt of stór fyr­ir yngstu börn­in. Jafn­væg­is­hjól­in bjóða hins­veg­ar börn­um niður í níu mánaða að spreyta sig á nýrri hreyf­ingu, t.d. að ýta sér áfram á báðum fót­um, ýta sér áfram á öðrum fæti og láta sig renna með fæt­urna frá jörðu.

„Þess­ar mis­mun­andi hreyf­ing­ar gera þeim auðveld­ara fyr­ir að færa sig á reiðhjólið,“ seg­ir Mercê. „Þú get­ur haldið jafn­vægi án þess að nota petal­ana, en þú get­ur ekki notað petal­ana án þess að halda hafn­vægi.“

Pezzalla seg­ir að hún vildi óska þess að hún hefði kennt tví­burun­um sín­um, sem nú eru tíu ára, að hjóla á jafn­væg­is­hjól­um. Að læra þessa hreyfigetu snemma hef­ur marga kosti, þá helst að komst á milli staða á nýj­an og skemmti­leg­an hátt. 

„Þetta kenn­ir þeim sjálf­stæði og sjálfs­traust sem er erfitt að finna á ann­an hátt,“ seg­ir Pezzalla. 

abc NEWS

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda