Þetta er vinsælasta þemað í barnaafmælum landsins

Er barnaafmæli framundan?
Er barnaafmæli framundan? Ljósmynd/Pexels/Vlada Karpovich

Barna­af­mæl­um fylg­ir iðulega mik­il spenna og stuð. Lang­flest­ir vilja að af­mæl­is­dag­ur barns­ins síns sé eft­ir­minni­leg­ur og því er oft heil­mikið lagt í skreyt­ing­ar og kræs­ing­ar í til­efni dags­ins. 

Al­gengt er að ákveðið þema sé valið fyr­ir barna­af­mæli, en mögu­leik­arn­ir eru enda­laus­ir og get­ur þemað verið allt frá því að vera ákveðinn lit­ur yfir í dýra­teg­und, teikni­mynda­per­sónu eða íþrótt. 

Par­t­í­búðin birti á dög­un­um TikT­ok-mynd­band þar sem þau op­in­beruðu hvaða þema væri vin­sæl­ast í barna­af­mæl­um á Íslandi um þess­ar mund­ir. Það ætti lík­lega ekki að koma nein­um á óvart sem á börn eða er mikið í kring­um börn – vin­sæl­asta þemað í barna­af­mæl­um á Íslandi er teikni­myndafíg­úr­an Blæja og fjöl­skylda henn­ar. 

Blæja er áströlsk teikni­myndasería sem fór fyrst í loftið í októ­ber 2018. Í þátt­un­um er fylgst með dag­legu lífi Hæl­bein fjöl­skyld­unn­ar sem lend­ir í hinum ýmsu æv­in­týr­um. 

Blæja, eða Bluey, hefur vakið mikla lukku víðsvegar um heiminn.
Blæja, eða Blu­ey, hef­ur vakið mikla lukku víðsveg­ar um heim­inn. Ljós­mynd/​Wikipedia.org
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda