5 reglur á heimili barnasálfræðings

Barnasálfræðingur deilir fimm reglum á heimili fjölskyldunnar.
Barnasálfræðingur deilir fimm reglum á heimili fjölskyldunnar. Ljósmynd/Pexels/Elina Fairytale

Barna­sál­fræðing­ur­inn Jess er þriggja barna móðir sem held­ur úti fræðslu fyr­ir for­eldra á sam­fé­lags­miðlum und­ir not­end­a­nafn­inu Nurt­ur­ed First. 

Á dög­un­um birti Jess lista yfir þær fimm regl­ur sem hún legg­ur sér­staka áherslu á hjá fjöl­skyldu sinni ásamt stutt­um út­skýr­ing­um.

1. Eng­inn lend­ir í vand­ræðum fyr­ir að segja sann­leik­ann

„Komdu á fót fjöl­skyldu­leiðbein­ing­um sem stuðla að hrein­skilni og heiðarleika,“ skrif­ar Jess og gef­ur dæmi um hvað for­eldr­ar geti sagt til að stuðla að þess­ari reglu: „Ég er svo ánægð að þú sagðir mér frá þessu. Ég er hér fyr­ir þgi ef þú vilt tala um þetta.“

2. Eng­ar spurn­ing­ar eru kjána­leg­ar! Spurðu hvað sem er!

„Kenndu börn­un­um þínum að þau geti komið til þín ef þau eru með spurn­ing­ar sem gætu verið óþægi­leg­ar,“ út­skýr­ir Jess og gef­ur aft­ur dæmi: „Þetta er mjög góð spurn­ing – takk fyr­ir að spyrja mig að þessu!“

3. Eng­inn get­ur snert lík­ama þinn nema þú leyf­ir það

„Kenndu börn­un­um þínum að „nei“ þýðir nei og að þau ráði yfir eig­in lík­ama,“ skrif­ar Jess og gef­ur dæmi: „Ég skil þig. Þú vilt ekki knús frá ömmu. Það er allt í lagi ... það er þitt val!“

4. Ef ein­hver seg­ir „hættu“, þá hætt­um við

„Vertu skýr við börn­in um að þau eigi að virða það þegar ein­hver seg­ir „nei“ eða „hættu“,“ út­skýr­ir Jess. Hún bæt­ir við dæmi: „Þegar við erum að kitla eða leika, og ein­hver seg­ir stopp, þá tök­um við hend­urn­ar af viðkom­andi.“

5. Við höld­um ekki leynd­ar­mál­um frá öðrum í þess­ari fjöl­skyldu!

„Kenndu börn­un­um þínum hver mun­ur­inn er á leynd­ar­mál­um og ein­hverju óvæntu (til dæm­is gjöf, af­mæli, hátíð) og hvað þau geta gert ef þeim er sagt að halda ein­hverju leyndu,“ skrif­ar Jess og gef­ur dæmi: „Það eru eng­in leynd­ar­mál í fjöl­skyld­unni okk­ar. Ef ein­hver biður þig um að halda ein­hverju leyndu, segðu okk­ur það þá strax.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda