Læknanemar bjóða börnum í heimsókn á Bangsaspítalann

Hinn sívinsæli Bangsaspítali snýr aftur næstkomandi laugardag.
Hinn sívinsæli Bangsaspítali snýr aftur næstkomandi laugardag. mbl.is/Hari

Bangsa­spítali Lýðheilsu­fé­lags lækna­nema hef­ur notið mik­illa vin­sælda á und­an­förn­um árum, en hann mun snúa aft­ur á höfuðborg­ar­svæðið næst­kom­andi laug­ar­dag, 14. sept­em­ber, og verður nú staðsett­ur á fjór­um heilsu­gæslu­stöðvum. 

Öllum börn­um ásamt for­eldr­um og for­ráðamönn­um er boðið að koma í heim­sókn með veika eða slasaða bangsa á milli klukk­an 10 til 16 á heilsu­gæslu­stöðvarn­ar í Efsta­leiti, Sólvangi, Seltjarn­ar­nesi og Sala­hverfi.

Fram kem­ur í viðburðinum að til­gang­ur verk­efn­is­ins sé tvíþætt­ur – ann­ars veg­ar að fyr­ir­byggja hræðslu hjá börn­um við lækna og heil­brigðis­starfs­fólk og hins veg­ar að gefa lækna­nem­um tæki­færi til að æfa sam­skipti við börn og aðstand­end­ur.

Öll börn eru velkomin á Bangsaspítalann með veika eða slasaða …
Öll börn eru vel­kom­in á Bangsa­spítal­ann með veika eða slasaða bangsa. mbl.is/Ó​ttar

Hvert barn kem­ur með sinn eig­in bangsa og mælt er með að rætt sé fyr­ir fram við barnið um það hvernig bangs­inn sé veik­ur, hvort hann sé t.d. með háls­bólgu, magapest eða brot­inn fót.

Barnið fær svo að inn­rita bangs­ann á heilsu­gæsl­unni og í kjöl­farið kem­ur bangsa­lækn­ir og vís­ar barn­inu inn á lækna­stofu þar sem skoðun og aðhlynn­ing fer fram á bangs­an­um. 

Nán­ari upp­lýs­ing­ar er að finna á Face­book.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda