„Ég fæ ekki nóg af koddaspjallinu okkar“

Falleg fjölskylda.
Falleg fjölskylda. Ljósmynd/Úr einkasafni

Birta Rós Hreiðars­dótt­ir og Eyþór Elí Ólafs­son voru aðeins tví­tug að aldri þegar dótt­ir þeirra, Júlía Rós, kom í heim­inn síðla júní­mánaðar 2020. Þau hafa sinnt for­eldra­hlut­verk­inu vel síðustu ár og leggja mikla áherslu á góð tengsl og sam­veru­stund­ir með dótt­ur sinni. Þau segja það for­rétt­indi að fá að fylgj­ast með barn­inu sínu vaxa og dafna.

Birta Rós deil­ir hér fimm af sín­um bestu upp­eld­is­ráðum.

Ró­leg­ar stund­ir

„Eins mikið og mig lang­ar að hlúa að sjálfri mér eft­ir lang­an dag og sjá Júlíu Rós bara sofna á fimm mín­út­um þá finnst mér kvöld­stund­in okk­ar svo dýr­mæt, þegar allt er komið í ró og haus­inn leggst á kodd­ann. En um leið og það ger­ist vill dótt­ir mín segja mér frá öllu milli him­ins og jarðar, sem ég elska. Ég fæ ekki nóg af kodda­spjall­inu okk­ar.

Í amstri dags­ins gefst oft ekki tími til að tala um allt og ekk­ert og er því mik­il­vægt að fá að losa aðeins. Mér finnst þetta mik­il­væg­ur part­ur af deg­in­um þar sem við liggj­um sam­an uppi í rúm­inu henn­ar og hún seg­ir okk­ur frá öllu sem gerðist á leik­skól­an­um og deil­ir ótrú­leg­ustu pæl­ing­um. Svo kúr­um við sam­an þar til hún sofn­ar.“

Birta Rós veit fátt betra en að eyða tíma með …
Birta Rós veit fátt betra en að eyða tíma með dótt­ur sinni. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Börn­in okk­ar eru bara lít­il í stutt­an tíma

„Börn eru háð öðrum, þá sér­stak­lega for­eldr­um sín­um, en með ár­un­um minnk­ar það að börn séu háð öðrum og því finnst mér mik­il­vægt að vera til staðar og sýna dótt­ur minni ást og um­hyggju. Á heim­ili okk­ar er því mikið um kossa og knús.“

Hvatn­ing­ar­orð eru mik­il­væg

„Já­kvæð og upp­byggi­lega sam­skipti eru stór og mik­il­væg­ur part­ur af upp­eld­inu. Að tala fal­lega til fólks og af virðingu ger­ir mikið fyr­ir okk­ur, öll vilj­um við heyra góða og upp­byggi­lega hluti. Þess vegna reyn­um við að segja við dótt­ur okk­ur á hverju kvöldi: „Þú ert klár, þú ert sterk, þú ert fal­leg, þú ert skemmti­leg“ og fleira í þeim dúr. Ég mæli með að gúgla „words of affir­mati­on“ og bæta slík­um setn­ing­um inn í dag­leg sam­skipti við börn­in ykk­ar. Það er ekk­ert betra en að fylgj­ast með börn­un­um taka við þess­um skila­boðum og end­ur­taka þau.“

Birta Rós leggur mikla áherslu á jákvæð samskipti.
Birta Rós legg­ur mikla áherslu á já­kvæð sam­skipti. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Börn­in eru speg­il­mynd af okk­ur sjálf­um

„Á yngri árum, al­veg sér­stak­lega, eru börn­in okk­ar speg­il­mynd af okk­ur sjálf­um og læra miklu meira af gjörðum okk­ar en orðum. Því er mik­il­vægt að verða var við eig­in ókosti svo þeir „smit­ist“ ekki yfir á börn­in okk­ar. Þau læra það sem fyr­ir þeim er haft.“

Eng­inn er full­kom­inn

„Eng­inn er full­kom­inn, all­ir gera mis­tök og við erum öll bara að reyna að gera okk­ar besta. Ég er alltaf með þetta á bak við eyrað, enda er barna­upp­eldi krefj­andi og oft á tíðum mjög erfitt. Það er auðvelt að mis­stíga sig, en þá þarf bara að hífa sig upp og halda áfram.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda