Tónlistarkonan og plötusnúðurinn Ragnhildur Jónsdóttir, betur þekkt sem Ragga Hólm, og kærasta hennar Elma Valgerður Sveinbjörnsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn þann 22. október síðastliðinn.
Parið greindi frá gleðitíðindunum á Instagram um helgina.
„Þann 22. október kl. 07:12 mætti litli strákurinn okkar í heiminn. Ég get ekki sett það í orð hvað ég er stolt af Elmu minni sem stóð sig eins og hetja.
Ég mun þakka henni á hverjum degi fyrir að hafa búið til gullfallega son okkar. Elmu heilsast vel, honum heilsast vel og mér líður vel,” skrifuðu þær við fallega myndaseríu.
Smartland óskar fjölskyldunni hjartanlega til hamingju.