Tískudrottningin og áhrifavaldurinn Lára Clausen og Jens Hilmar Wessman, sonur Róberts Wessman athafnamanns og Sigríðar Ýrar Jensdóttur læknis, eiga von á sínu fyrsta barni saman.
Parið tilkynnti gleðitíðindin í sameiginlegri færslu á Instagram í dag.
„Ma&Pa ‘25“, skrifaði parið við færsluna.
Lára og Jens Hilmar fundu ástina fyrr á þessu ári.
Lára varð fræg á Íslandi þegar hún, ásamt Nadíu Sif Líndal, heimsóttu tvo enska fótboltamenn á hótelherbergi í Reykjavík. Málið vakti heimsathygli og var töluvert skrifað um það hérlendis og erlendis.