Buguð móðir leitar ráða vegna rifrildi barna hennar

Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur svarar spurningum lesenda.
Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur svarar spurningum lesenda. Samsett mynd

Tinna Rut Torfa­dótt­ir sál­fræðing­ur á sál­fræðistof­unni Sál­ar­líf svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. 

Sæl Tinna. 

Hvernig er best að stuðla að heil­brigðum sam­skipt­um í leik á milli systkina sem eru enda­laust að ríf­ast og meiða hvort annað? Annað er 2ja og hálfs árs og hitt er 4 ára.

Kveðja, 

Buguð móðir

Sæl bugaða móðir. 

Mik­il­vægt er að stuðla að já­kvæðum sam­skipt­um, hrósa þeim í hvert skipti sem þau sýna æski­lega hegðun í sam­skipt­um við hvort annað og veita hvort öðru já­kvæða at­hygli. Búa til sam­veru­stund­ir með þeim sam­an, þar sem þið for­eldr­arn­ir eða alla­vega annað ykk­ar eru með þeim. Í þeim væri hægt að gera eitt­hvað sem þeim finnst skemmti­legt, eins og að lesa fyr­ir þau sam­an, kubba með þeim, spila eða hvað sem ykk­ur dett­ur í huga að gera. En mik­il­vægt er að þau hafi at­hygli ykk­ar for­eldra óskipta í sam­veru­stund­inni.

Þau eru bæði mjög ung ennþá og þurfa leiðbein­ing­ar og fyr­ir­mynd­ir um hvernig þau eiga að eiga í góðum sam­skipt­um. Halda ró ykk­ar ef þið þurfið að grípa inn í hjá þeim (ef þau eru að meiða/​ríf­ast) og leiðbeinið þeim á ró­leg­an hátt. Ég mæli einnig með því að þau fái sam­veru­stund með ykk­ur for­eldr­um eins­lega þ.e.a.s ekki alltaf þau sam­an svona af og til.

Kveðja, 

Tinna Rut Torfa­dótt­ir sál­fræðing­ur. 

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Tinnu Rut spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda