Margrét og Ísak Ernir gáfu dóttur sinni nafn

Fjölskyldan á skírnardaginn.
Fjölskyldan á skírnardaginn. Skjáskot/Instagram

Mar­grét Bjarna­dótt­ir bæj­ar­full­trúi í Garðabæ og unnusti henn­ar Ísak Ern­ir Krist­ins­son, viðskipta­fræðing­ur og körfu­bolta­dóm­ari, gáfu dótt­ur sinni nafn nú á dög­un­um. Stúlk­an, sem kom í heim­inn þann 29. októ­ber síðastliðinn, fékk nafnið Erla Mar­grét.

Mar­grét og Ísak Ern­ir greindu frá nafni stúlk­unn­ar í sam­eig­in­legri færslu á In­sta­gram á mánu­dag.

„Skírn Erlu Mar­grét­ar,“ skrifuðu for­eldr­arn­ir við fal­lega fjöl­skyldu­mynd.

Mar­grét og Ísak Ern­ir hafa verið sam­an í nokk­ur ár en árið 2020 kom frumb­urður­inn Bjarni Þór í heim­inn. Hann er skírður í höfuð á móðurafa- og ömmu en það eru þau Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráðherra og Þóra Mar­grét Bald­vins­dótt­ir inn­an­hús­ráðgjafi. 

Smart­land ósk­ar fjöl­skyld­unni hjart­an­lega til ham­ingju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda