Þjóðþekktir einstaklingar héldu jólin á náttfötunum

Jól á náttfötunum.
Jól á náttfötunum. Samsett mynd

Á síðustu miss­er­um hef­ur það orðið sí­vin­sælla meðal lands­manna að fagna jól­un­um á nátt­föt­un­um, en þessi vest­ræna hefð hef­ur fest sig í sessi sem ómiss­andi hluti af jóla­haldi margra, þó svo að spari­klæðin séu nú al­geng­ari á flest­um ís­lensk­um heim­il­um.

Nokkr­ir þjóðþekkt­ir ein­stak­ling­ar deildu krútt­leg­um mynd­um af sér og fjöl­skyld­um sín­um, klædd í nátt­fata­sett með jólaþema, á meðan aðrir birtu fal­leg­ar mynd­ir af sér og fjöl­skyldumeðlim­um sín­um í full­um skrúða.

Bros­mild í bláu!

Katrín Edda Þor­steins­dótt­ir, verk­fræðing­ur og sam­fé­lags­miðlastjarna, birti fal­lega mynd af sér ásamt eig­in­manni sín­um, Markus Wass­er­baech, og börn­um, öll klædd blá­um nátt­föt­um.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Katr­in Edda (@katr­in­edda)

Kósí!

Af­reksíþrótta­kon­an Annie Mist Þóris­dótt­ir hélt kósíjól í faðmi fjöl­skyld­unn­ar.

Spari­leg!

Þjálf­ara­hjón­in Sandra Björg Helga­dótt­ir og Hilm­ar Arn­ar­son tóku á móti sínu fyrsta barni í sept­em­ber og fögnuðu fyrstu jól­um Helga Snæs í sínu fín­asta pússi.

Köfl­ótt jól!

Hlaupa­kon­an Mari Järsk og kær­asti henn­ar, Njörður Ludvigs­son, voru smart í köfl­ótt­um nátt­föt­um. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by M A R I J Ä R S K (@mari_jaersk)

Huggu­leg­heit!

Íris Svava Pálma­dótt­ir, þroskaþjálfi og talsmaður já­kvæðrar lík­ams­ímynd­ar, og sam­býl­ismaður henn­ar, Arnþór Fjal­ar­son, fögnuðu fyrstu jól­um dótt­ur sinn­ar, Sól­dís­ar Hönnu, á nátt­föt­un­um.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Íris Svava (@iris­svava)

Nátt­fatapartí! 

Guðmund­ur Birk­ir Pálma­son, jafn­an kallaður Gummi kíró, og sam­býl­is­kona hans, Lína Birgitta Sig­urðardótt­ir, eyddu aðfanga­degi á nátt­föt­un­um ásamt börn­um hans.

Diskójól!

Fast­eigna­sal­inn Gunn­ar Pat­rik Sig­urðsson og hlaðvarps­stjarn­an Birta Líf Ólafs­dótt­ir leyfðu dótt­ur sinni, Emblu Líf, að skína í glæsi­leg­um pallí­ettukjól á aðfanga­dags­kvöld.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Birta Líf (@bir­tali­fol­afs)

Í stíl!

Fjöl­skylda Jó­hönnu Helgu Jens­dótt­ur var afar glæsi­leg á aðfanga­dags­kvöld. 

Jól á nátt­föt­un­um!

Bak­ar­inn Jó­hann­es Felix­son, jafn­an kallaður Jói Fel, og unn­usta hans, Krist­ín Eva Sveins­dótt­ir, voru sæt og fín í jóla­nátt­föt­um.

Krútt­leg! 

Sam­fé­lags­miðlastjarn­an Guðrún Veiga Guðmunds­dótt­ir og fjöl­skylda henn­ar voru öll í stíl í krútt­leg­um nátt­föt­um.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Guðrún Veiga (@gveig­a85)

Hátíð í bæ!

Fann­ey Ingvars­dótt­ir, markaðsfull­trúi Bi­oef­fect og fyrr­ver­andi feg­urðardrottn­ing, og Teit­ur Reyn­is­son, viðskipta­fræðing­ur í Lands­bank­an­um, héldu jól­in hátíðleg ásamt börn­um sín­um tveim­ur. 

Jólapeysujól!

Vöðvatröllið Hafþór Júlí­us Björns­son, bet­ur þekkt­ur sem Fjallið, og fjöl­skylda hans fóru milli­veg­inn og héldu upp á jólapeysujól. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Kels­ey Hen­son (@kelc33)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda