Þorleifur og Erna Mist eignuðust dóttur

Þorleifur Örn Arnarsson og Erna Mist Yamagata.
Þorleifur Örn Arnarsson og Erna Mist Yamagata.

Erna Mist Yama­gata mynd­list­armaður og Þor­leif­ur Örn Arn­ars­son leik­stjóri eignuðust dótt­ur í fyrra­dag, þann 15. janú­ar. Stúlk­an er fyrsta barn for­eldra sinna sam­an en fyr­ir á Þor­leif­ur son sem er á ung­lings­aldri. 

Parið byrjaði að hitt­ast í fyrra en Morg­un­blaðið var ör­laga­vald­ur í þeirra sam­bandi því það má segja að þau hafi kynnst í gegn­um blaðið. Um jól­in var sýn­ing­in Kött­ur á heitu blikkþaki frum­sýnd en þar leik­stýr­ir hann verk­inu og hún hannaði leik­mynd og bún­inga.

Erna Mist og Þor­leif­ur sögðu frá sín­um fyrstu fund­um í Jóla­blaði Morg­un­blaðsins sem kom út í nóv­em­ber 2024. 

„Mætti ekki segja að við höf­um kynnst í Mogg­an­um?“ seg­ir Erna, sem hef­ur birt skoðanap­istla í blaðinu um sam­fé­lags­mál.

„Jú, ég rakst á grein eft­ir Ernu, sem ég vissi eng­in deili á,“ seg­ir hann.

Og hugsaðir þú bara, hvaða meist­ari er þetta?

„Það er ekk­ert oft sem þú lest ein­hvern texta úr þessu litla sam­fé­lagi og hugs­ar: Hver er þetta? Þetta snerti mig ofboðslega djúpt. Ég hugsa, þarna er ein­hver ofboðslega magnaður hugsuður sem bæði mót­ar og sér heim­inn og ég fann að þetta væri mann­eskja sem mig langaði að kynn­ast. Ég vissi eng­in deili á henni og vissi ekki hvernig hún leit út. Vissi ekk­ert. Ég gúgglaði hana, fann hana á In­sta­gram og addaði henni,“ seg­ir hann.

„Ég vissi hver hann var og þekkti hann í gegn­um sýn­ing­arn­ar hans. Það er svo fyndið með lista­menn – oft þekk­ir maður þá að vissu leyti án þess að hafa nokk­urn tím­ann hitt mann­eskj­una. Per­sónu­leik­inn skín í gegn­um verk­in sem maður skap­ar,“ seg­ir hún.

„Ein­hverj­um vik­um síðar sat ég inni í stofu og var að skrolla og þá poppaði upp Story hjá Ernu á In­sta­gram. Þá var hún í New York og var á söng­leik sem heit­ir The Book of Mormon, sem er skrifuð af South Park-geng­inu og mig hef­ur lengi langað að sjá. Ég droppaði skila­boðum á hana og sagði: „Nú er ég öf­und­sjúk­ur.“ Ég fékk strax svar og við byrjuðum að skrif­ast á, gát­um í raun­inni ekki hætt að skrif­ast á og nú er komið ár og fjór­ir dag­ar síðan þetta hófst,“ seg­ir hann.

„Þetta var svona sam­tal sem vildi ekki enda,“ seg­ir Erna.

Smart­land ósk­ar Ernu Mist og Þor­leifi til ham­ingju með dótt­ur­ina! 

Hér eru Erna Mist og Þorleifur stödd erlendis.
Hér eru Erna Mist og Þor­leif­ur stödd er­lend­is. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda