„Ég mun alltaf hafa grunngildin í huga“

Þórey fermist í Lindakirkju í Kópavogi og er spennt fyrir …
Þórey fermist í Lindakirkju í Kópavogi og er spennt fyrir deginum. Morgunblaðið/Karítas

Þórey María Ein­ars­dótt­ir, 13 ára nem­andi í grunn­skól­an­um NÚ í Hafnar­f­irði og balle­rína, seg­ir ferm­ing­ar­fræðsluna hafa komið sér ansi skemmti­lega á óvart og að hún kenni
ferm­ing­ar­börn­um hvernig eigi að vera góðar mann­eskj­ur. Þórey er spennt fyr­ir þess­um
stóra áfanga í lífi sínu og er und­ir­bún­ing­ur í full­um gangi fyr­ir veisl­una sem hald­in verður
á heim­ili henn­ar í Kópa­vogi. Það sem er þó mik­il­væg­ast á ferm­ing­ar­dag­inn, í huga Þóreyj­ar, er að hafa gam­an með fjöl­skyldu og vin­um.

Hin 13 ára gamla Þórey María Ein­ars­dótt­ir stund­ar nám í 8. bekk við grunn­skól­ann NÚ í Hafnar­f­irði, skóla sem er ætlaður ung­ling­um í 8.-10. bekk og með áherslu á íþrótt­ir. „Það eru aðallega krakk­ar í af­reksíþrótt­um í þess­um skóla. Þar eru aðeins öðru­vísi áhersl­ur, t.d. í staðinn fyr­ir að taka eitt­hvert hefðbundið val­fag þá erum við í íþróttavís­ind­um þar sem er lögð áhersla á mark­miðasetn­ingu, nær­ing­ar­fræði, svefn og hug­ar­far.“

Sjálf er Þórey balle­rína, hún hef­ur æft ball­ett frá tveggja ára aldri og stund­ar æf­ing­ar í dag við List­d­ans­skóla Íslands, sex til sjö daga vik­unn­ar. Hún svar­ar glöð í bragði þegar hringt er í hana til að spjalla um stóra dag­inn, ferm­ing­ar­dag­inn sjálf­an, en henn­ar dag­ur er á pálma­sunnu­dag, 13. apríl.

Hér er Þórey komin í fermingarkjólinn en hún sat fyrir …
Hér er Þórey kom­in í ferm­ing­ar­kjól­inn en hún sat fyr­ir hjá Galleri 17 í til­efni af ferm­ing­ar­vertíðinni.

Ferm­ing­ar­fræðslan kom á óvart

Það vafðist aldrei fyr­ir Þóreyju að ferm­ast í kirkju. „Mér fannst það sjálfsagt. Ég vildi halda upp á trúna og viðhalda góðum gild­um.“

Hún fermist í Linda­kirkju í Kópa­vogi, í því sveit­ar­fé­lagi þar sem hún er bú­sett. Spurð út í ferm­ing­ar­fræðsluna seg­ir Þórey: „Hún kom mér rosa­lega mikið á óvart, hvað hún er skemmti­leg og líf­leg og hvað hún kenn­ir góð gildi fyr­ir lífið.“ Henni finnst fræðslan ein­fald­lega kenna krökk­um hvernig eigi að vera góð mann­eskja.

Var eitt­hvað sem þú lærðir sem þú hafðir ekki hug­mynd um?

„Nei, ekki beint en mér fannst ég læra mikið af lífs­reynslu­sög­un­um sem prest­arn­ir hafa sagt okk­ur. Eft­ir að ég heyrði þess­ar sög­ur er ég meðvitaðri úti í dag­lega líf­inu.“

Þórey hef­ur stundað ferm­ing­ar­fræðsluna sam­visku­sam­lega og spurð út í ritn­ing­ar­versið er hún fljót til svars: „Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á veg­um mín­um,“ seg­ir hún og bæt­ir við að þetta sé sálm­ur 119, vers 105.

Þórey æfir ballet en þessi ljósmynd var tekin á slíkri …
Þórey æfir ball­et en þessi ljós­mynd var tek­in á slíkri æf­ingu á dög­un­um.

Ball­ettþema í veisl­unni

Ferm­ing­ar­und­ir­bún­ing­ur­inn er kom­inn á fullt og að nógu er að huga. Þórey seg­ist ætla að halda veisl­una heima hjá sér í Kópa­vogi en þangað verður nán­ustu fjöl­skyldu og vin­um boðið. „Ég er ekki al­veg kom­in með töl­una á fjöld­an­um en þetta verður frek­ar lít­il veisla myndi ég segja.“

En minni veisla er ekki sam­nefn­ari fyr­ir minna fjör, enda nokkuð ljóst á sam­tal­inu að það á eft­ir að verða mikið stuð heima hjá Þóreyju á ferm­ing­ar­dag­inn. „Við verðum með sæl­gæt­is-, snakk- og popp­b­ar, þar sem hægt er að setja góðgætið í sellóf­an­poka með límmiðum merkt­um nafn­inu mínu og ferm­ing­ar­deg­in­um.“ Að auki verður partítj­ald í garðinum en þar seg­ir Þórey að verði kandíf­loss- og krap­vél og einnig mynda­kassi, svo að gest­ir geta tekið mynd­ir af sér í bullandi stemn­ingu. „Það verður sko stuð þar!“

Og hverju fleiru hef­urðu hugað að fyr­ir stóra dag­inn?

„Ég hef verið að und­ir­búa veit­ing­ar og hvaða þema ég vildi hafa. Ég hannaði líka boðskort.“ Þórey seg­ir að veit­ing­arn­ar verði aðkeypt­ar og að það verði smá­rétta­hlaðborð með pinna­mat og snitt­um.

Það seg­ir sig kannski sjálft að í veisl­unni verði ball­ettþema, með bleik­um, hvít­um og silfruðum lit­um og skrauti. „Svo ætla ég að hafa táskó og hvít blóm á borðinu.“ Þá verður hvít slaufukaka með vanillu­bragði frá Sæt­um synd­um í eft­ir­rétt.

Framtíðin björt

Þórey keypti ferm­ing­ar­kjól­inn í Galle­rí sautján. „Þetta er hvít­ur stutt­ur kjóll skreytt­ur blúnd­um að ofan. Svo keypti ég hvíta hæla­skó í GS skóm og einnig hvíta striga­skó til að hvíla fæt­urna inni á milli.“

Spurð seg­ir hún ekk­ert eitt ákveðið í ferm­ing­ar­tísk­unni sem jafn­öldr­ur henn­ar kaupi sér og að mik­il fjöl­breytni sé í vali á kjól­um sem ým­ist séu í lit eða hvít­ir, þó bæt­ir hún við að flest­ar vin­kon­ur henn­ar hafi keypt ferm­ing­ar­föt­in í Galle­rí sautján.

Þegar búið er að fara yfir klæðnaðinn ligg­ur bein­ast við að spyrja um hár og förðun. Þórey seg­ist munu fara í greiðslu á hár­greiðslu­stofu og ætl­ar að hafa hluta hárs­ins upp­sett­an í flétt­um og rest­in af hár­inu leiki laus í stór­um krull­um.

„Ég keypti ferm­ing­ar­skartið í Kaup­manna­höfn þegar ég var þar í ball­ett­ferð í fe­brú­ar sl. en skartið er silf­ur­eyrna­lokk­ar og hring­ar frá Pil­grim. Svo ætla ég sjálf að gera létta förðun heima.“

Hvað finnst þér skipta mestu máli á ferm­ing­ar­dag­inn?

„Að hafa gam­an með fjöl­skyldu og vin­um.“

En þá er stóra spurn­ing­in hvað lang­ar þig í í ferm­ing­ar­gjöf?

„Mig lang­ar aðallega í pen­inga til þess að kom­ast í ball­ett­ferðir til út­landa en svo finnst mér líka gam­an að fá flotta skart­gripi og svo­leiðis,“ svar­ar Þórey. Hún á sér ein­mitt stór­an framtíðardraum um að verða at­vinnu­ball­ett­d­ans­ari. „Ég myndi vilja fara í virt­an ball­ett­skóla er­lend­is,“ og nefn­ir Þórey The Royal Dan­ish Ball­et í Kaup­manna­höfn.

„Ég hef alltaf haft þol­in­mæðina í ball­ett­inn og hef mikla ástríðu fyr­ir dans­in­um,“ seg­ir Þórey og er hún viss um að lær­dóm­ur ferm­ing­ar­fræðslunn­ar fylgi sér út í lífið. „Ég mun alltaf hafa grunn­gild­in í huga,“ bæt­ir hún við að lok­um.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda