Sjónvarpsmaðurinn Fannar Sveinsson og eiginkona hans, Valgerður Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur eignuðust sitt þriðja barn nú á dögunum.
Í heiminn kom lítill drengur sem hefur hlotið nafnið Dagur.
Fyrir eiga Fannar og Valgerður tvö börn, dreng og stúlku, sem eru fædd 2017 og 2019.
Fannar greindi frá fæðingu sonar síns á Instagram-síðu sinni á sunnudag.
„Þetta er Dagur Fannarsson – allt gekk vel og öllum líður vel,“ skrifar hann við fallega myndaseríu af nýjasta fjölskyldumeðlimnum.
Smartland óskar fjölskyldunni hjartanlega til hamingju!