Elli Egils og María Birta stækka fjölskylduna

Elli Egils og María Birta með dætur sínar Ingaciu og …
Elli Egils og María Birta með dætur sínar Ingaciu og Nöju. Skjáskot/Instagram

„Fox fjöl­skyld­an hef­ur stækkað og hjört­un með. Við kynn­um dótt­ur okk­ar - Naja Ella­dótt­ir Fox.“ Svona hljóm­ar færsla á In­sta­gram-síðu leik­kon­unn­ar Maríu Birtu Bjarna­dótt­ur Fox, en hún og listamaður­inn Elli Eg­ils­son Fox höfðu áður ætt­leitt Ingaciu, sem verður fjög­urra ára á ár­inu.

Elli var í viðtali í hlaðvarpsþætt­in­um Töl­um um, í stjórn kírópraktors­ins Guðmund­ar Birk­is Pálma­son­ar, sum­arið 2024 og þar kom fram að þau María Birta hafa haft „heim­ili sitt opið“ og verið dug­leg að taka á móti fóst­ur­börn­um allt frá því þau fluttu til Las Vegas.

Maríu Birtu dreymdi ávallt um að ætt­leiða börn, frá því hún var barn sjálf.

Elli og María hafa verið gift í ell­efu ár núna í júlí en þau giftu sig aðeins níu mánuðum eft­ir að þau kynnt­ust. Í viðtal­inu seg­ir Elli að þau María séu „eitt risa­stórt hjarta“. 

Smart­land ósk­ar þeim til ham­ingju með lífið!

View this post on In­sta­gram

A post shared by María Birta Fox (@maria­birta)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda