„Hamingjan á heimilinu er í botni“

Guðmundur Þór og Tanja Rós.
Guðmundur Þór og Tanja Rós. Skjáskot/Instagram

Tanja Rós Inga­dótt­ir birt­ingaráðgjafi hjá Datera og sam­býl­ismaður henn­ar, Guðmund­ur Þór Júlí­us­son, fast­eigna­sali hjá Remax og fyrr­ver­andi knatt­spyrnumaður, eiga von á sínu þriðja barni nú í haust.

Fyr­ir á parið tvö börn, hinn sjö ára gamla Emanú­el og Kar­in fjög­urra ára.

Tanja Rós og Guðmund­ur Þór til­kynntu um stækk­un fjöl­skyld­unn­ar í sam­eig­in­legri færslu á In­sta­gram nú á dög­un­um.

„Ham­ingj­an á heim­il­inu er í botni! Lít­ill óvænt­ur glaðning­ur sem við hlökk­um svo til að hitta - stytt­ist í að við verðum 5 ef allt geng­ur að ósk­um,” skrif­ar parið við mynd af són­ar­mynd.

Tanja Rós hóf störf hjá birt­inga- og ráðgjafa­fyr­ir­tæk­inu Datera í byrj­un árs, en áður starfaði hún sem viðskipta­stjóri hjá Sýn.

Guðmund­ur Þór breytti um stefnu þegar hann lagði fót­bolta­skóna á hill­una fyr­ir ör­fá­um árum síðan og hjálp­ar nú fólki að finna drauma­eign­ina.

View this post on In­sta­gram

A post shared by TANJA RÓS (@tanjaros)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda