„Það er gott að fá þau heim“

Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, eru …
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, eru stoltir foreldrar. Ljósmynd/Aðsend

For­seta­hjón­in, Halla Tóm­as­dótt­ir og Björn Skúla­son, hafa al­deil­is haft mörgu að fagna síðustu daga en börn þeirra, Auður Ína og Tóm­as Bjart­ur, eru ný­út­skrifuð úr elítu-há­skól­um í New York-borg.

Auður Ína út­skrifaðist úr sál­fræðideild Macaulay Hon­ors Col­l­e­ge en Tóm­as Bjart­ur lauk viðskipta­gráðu frá Stony Brook Uni­versity.

„Það er gott að fá þau heim“

Halla deildi fal­legri færslu á In­sta­gram-síðu sinni til að fagna þess­um mikla áfanga.

„Nú í lok maí og byrj­un júní út­skrifuðust þessi tvö „börn“ okk­ar úr sín­um há­skól­um, hún úr sál­fræði og hann úr viðskipta­fræði. Það er gott að fá þau heim og gam­an að sjá þau leita til­gangs í störf­um sín­um.

Tóm­as Bjart­ur hef­ur hafið störf á sam­býl­inu við Bleik­ar­gróf og er þegar að læra margt gagn­legt þegar kem­ur að um­hyggju barna.

Auður Ína er að hefja áhuga­vert verk­efni sem snýr að sam­fé­lags­miðlum og áhrif­um á and­lega heilsu ungs fólks. Það verður spenn­andi að fylgj­ast með og læra af því. Við for­eldr­arn­ir erum stolt og þakk­lát fyr­ir þau og ósk­um þeim til ham­ingju og allra heilla í næstu verk­efn­um,” skrif­ar Halla við fal­leg­ar fjöl­skyldu­mynd­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda