Morgunrútína Kris Jenner

Kris Jenner.
Kris Jenner. mbl.is/AFP

Hin 63 ára Kris Jenner er eng­in venju­leg kona sem sést vel á morg­un­rútínu raun­veru­leika­stjörnu­mömm­unn­ar. Jenner seg­ist í viðtali við elstu dótt­ur sína, Kourt­ney Kar­dashi­an, vakna klukk­an hálf­fimm eða fimm á morgn­ana. Rútína skipt­ir hana öllu máli. 

Hún seg­ist búa sig und­ir mjög lang­an dag. Klukk­an hálf­fimm eða fimm vakn­ar hún, fer á fæt­ur og drekk­ur kaffi og kík­ir á tölvu­póst­inn, því næst fer hún á hlaupa­brettið. Hún reyn­ir að vera á hlaupa­brett­inu í 45 mín­út­ur kannski klukku­tíma og nýt­ir tím­ann til þess að fylgj­ast með frétt­um og því sem er að ger­ast í heim­in­um. Seg­ist hún vera til­bú­in í dag­inn and­lega og lík­am­lega eft­ir þenn­an tíma í rækt­inni heima hjá sér. 

Ásamt því að vera með morg­un­rútínu er Jenner einnig með kvöldrútínu en eft­ir lang­an dag fær hún sér áfeng­an drykk til þess að slaka á. 

Kris Jenner er ekki bara raun­veru­leika­stjarna held­ur mann­eskj­an á bak við viðskipta­veldi fjöl­skyldu sinn­ar og er umboðsmaður Kar­dashi­an/​Jenner-fjöl­skyld­unn­ar. 

Kim Kardashian, Kourtney Kardashian og Kris Jenner.
Kim Kar­dashi­an, Kourt­ney Kar­dashi­an og Kris Jenner. mbl.is/​AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda