Notaðu reiðufé til að spara

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Hver tækni­bylt­ing­in rek­ur aðra á 21. öld­inni og aldrei hef­ur verið auðveld­ara að eyða pen­ing­um. Maður þarf bara að hafa með sér tækið sem maður læt­ur hvort sem er aldrei frá sér. Ef þú ert bú­inn að setja þér mark­mið um að spara fyr­ir ein­hverju ákveðnu, eins og hús­næði, út­landa­ferð eða raf­hjóli ætt­ir þú að velta fyr­ir þér kost­um þess að ganga um með reiðufé.

Flest sem vinna heiðarlega vinnu fá laun sín greidd inn á banka­reikn­ing og velta lítið fyr­ir sér fjár­hagn­um fyrr en í upp­hafi mánaðar þegar þau þurfa að greiða reikn­inga. Fæst sjá­um við laun­in okk­ar í áþreif­an­leg­um pen­inga­seðlum. 

Rann­sókn­ir hafa hins veg­ar sýnt að fólk á erfiðara með að borga fyr­ir hluti með reiðufé. 

Það er sniðugt að vera búin(n) að skipu­leggja út­gjöld mánaðar­ins áður en laun eru borguð út. Ef þú ert einn af þeim sem á erfitt með að spara og átt það til að eyða meiru en þú ætl­ar þér, þá gæti þetta ráð hjálpað þér.

Þegar þú hef­ur fengið út­borgað og greitt reikn­inga í heima­bank­an­um, þá stend­ur út af ákveðin upp­hæð til ráðstöf­un­ar út mánuðinn sem fer í neyslu og sparnað. 

Tök­um sem dæmi að þú haf­ir ákveðið að ákveða að ráðstafa 150.000 krón­um til neyslu. Taktu þessa upp­hæð út úr bank­an­um í reiðufé, skiptu pen­ingn­um niður á þá flokka sem þú ætl­ar að hafa. Flokk­arn­ir sem þú þarft að nota eru hér að neðan og upp­hæð hvers flokks fer í sér um­slag.  Sú fjár­hæð er það sem þú hef­ur til ráðstöf­un­ar í viðkom­andi út­gjaldalið þenn­an mánuðinn.

Í hvert skipti sem þú ferð að versla, þá tek­ur þú af þeirri fjár­hæð sem er í viðeig­andi um­slagi. Til dæm­is mætti hugsa sér þessa skipt­ingu:

Mat­ur: 80.000 krón­ur

Eldsneyti: 20.000 krón­ur

Út að borða/​skyndi­biti: 20.000 krón­ur

Skemmt­un: 15.000 krón­ur

Annað: 15.000 krón­ur 

Þetta er mjög ein­föld upp­setn­ing og töl­urn­ar bara dæmi, ekki regla. Það er mis­mun­andi hvað flokk­ar og upp­hæðir henta hverj­um og ein­um og það finn­ur þú út sjálf(ur) með tím­an­um. Þetta er góð leið til að tak­marka eyðslu og maður hugs­ar sig von­andi tvisvar um áður en maður eyðir í óþarfa.

Þetta er mjög góð leið til að hvíla kred­it­kort­in og eyða bara því sem þú átt. Það er líka sniðugt að taka út reiðufé ef þú ert að spara fyr­ir ein­hverju ákveðnu og safna því sam­an í söfn­un­ar­um­slag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda